Frumhlaup SBK
Í viðtali við framkvæmdastjóra SBK í DV 11. júní sl. ber framkvæmdastjóri SBK Ökuleiðamönnum söguna illa. Hann segir það skelfilega þjónustu hjá ökumönnum Ökuleiða að neita að aka farþegum í veg fyrir rútuna sem fer til Reykjavíkur. Geri þeir það taki þeir 1000 kr fyrir sem hann segir helmingi of hátt. Því er til að svara að gjaldið er 1000 kr. þangað skv. mæli. Þeir farþegar sem hann segir „sína“ farþega við flugstöðina, hafa aldrei verið „hans“ farþegar. Við höfum bent fólki á að það sé jafn dýrt að taka bíl að rútunni til Reykjavíkur og þurfa síðan að taka leigubíl þar aftur, eins og að sameinast um leigubíl fyrir 2000 kr hvert sæti í litlum bíl og 1500-2000 kr í stórum bíl. Þannig kemst fólk beint á áfangastað milliliðalaust fyrir sama gjald. SBK fór upp á flugstöð og „stal sér“ um 60 farþegum áður en verkfallsverðir Sleipnis komu á staðinn og stöðvuðu bílstjóra fyrirtækisins. Þar náði fyrirtækið sér í u.þ.b. 50 þúsund krónur. Einar segir Ökuleiðamenn verja flugstöðina með kjafti og klóm og vilja sitja einir að öllum farþegum þar, en það vill þannig til að í verkfalli sem þessu eru leigubifreiðastjórar þeir einu sem mega taka þar farþega utan hópa gegn gjaldi. Einar segir enn fremur að leigubifreiðastjórar taki tugi þúsunda fyrir farið til Reykjavíkur, sem að sjálfsögðu er ekki svaravert því hann veit mun betur. Enda bað Einar afsökunar á þeim mistökum í DV 11. júní, því þetta dettur engum leigubifreiðastjóra í hug. Einar segir einnig að SBK hafi fullan rétt til að sækja fólk að Leifsstöð og hafi verið að bregðast við neyðarástandi sem leigubifreiðastjórar hafi skapað. Því er til að svara að þeir hefðu ekki verið reknir frá stöðinni ef þeir hefðu haft rétt til að vera þar. Leigubifreiðastjórar hafa að sjálfsögðu ekki skapað neitt neyðarástan. Þeir tóku málið í sínar hendur og forðuðu fólki frá neyðarástandi með að safna því saman í bílana á sætagjaldi eins og fyrr segir í þessari grein. Þetta gerðu þeir að mínu áliti mjög vel þannig að enginn þurfti að bíða meira en u.þ.b. 20-30 mínútur eftir bíl í góðu veðri. Mér finnst að leigubifreiðastjórar eigi heiður skilinn fyrir framtak sitt því flugfarþegar vissu ekkert um þetta verkfall þegar þeir komu í Leifsstöð, þrátt fyrir að það hafi staðið yfir í 3-4 vikur. Margir farþegar voru þar að auki með nokkurra daga gamla miða í Kynnisferðarútur.Þá segir Einar að Ökuleiðir hafi brotið á þeim lög. Afskipti okkar af þeim hafa ekki verið önnur en þau að við undruðumst hvað þeir væru að gera í Leifsstöð í miðju verkfalli. Mig grunar að Kynnisferðir eigi frumkvæðið að þessu frumhlaupi SBK, þar sem Kynnisferðir eiga um 34% í fyrirtækinu. Mér finnst bifreiðastjórar SBK sýna litla fyrirhyggju með því að fara inn í störf Sleipnisfélaga því eflaust munu þeir sjálfir einhvern tíma þurfa aðstoð í launadeilu.Í grein í Víkurfréttum fimmtudaginn 13. júlí er talað um sameiginlega gjaldskrá, en sama gjald er alltaf yfir allt landið. Þar segir einnig að forsvarsmenn leigubílastöðva hafi ætlað að koma sér saman um verðskrá á fundi þriðjudaginn 11. júlí. Þessi frétt er hins vegar úr lausu lofti gripin, því verðskráin kemur frá samkeppnisstofnun og breytast mælar bílanna samkvæmt því. Við erum þannig háðir verðlagseftirliti frá stofnuninni.Í grein Víkurfrétta er haft eftir Berglindi í upplýsingamiðstöð flugstöðvarinnar að það séu nokkrir svartir sauðir í leigubílastéttinni. Væri mjög æskilegt að hún benti á þessa svörtu sauði eða tæki orð sín til baka.Í viðtali við Ernu Hauksdóttur framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar í fyrrnefndri grein í DV, fullyrðir hún að leigubifreiðastjórar hafi rukkað ferðamenn um allt að 30 þús. kr. Hún hlýtur að þurfa að standa við þetta öðruvísi en sem fullyrðingu út í loftið. Hún hlýtur að gera sér grein fyrir sem framámaður ferðaþjónustunnar að það hljóti að skaða ferðaþjónustuna í heild að kasta fram slíkum ummælum. Einnig myndi ég vilja koma á framfæri að stríðsfréttir fjölmiðla um þessi verkfallsmál og nýafstaðinn jarðskjálfta hafa að mínu áliti skaðað ferðaþjónustuna um hundruð þúsunda og hrætt tilvonandi ferðamenn frá Íslandi. Vona ég að viðkomandi aðilar slaki á stóryrðum sínum í fréttaflutningi af slíkum atburðum í framtíðinni, því öll þurfum við að vinna saman til þess að fá ásættanlega útkomu.Magnús JóhannssonStöðvarstjóri bifreiðastöðvarinnar Ökuleiða í Keflavík