Frjálslyndir opna skrifstofu í Grindavík
Kosningaskrifstofa Frjálslynda flokksins Grindavík var opnuð með pylsupartý og skemmtilegheitum í gærdag.
Frambjóðendur flokksins Grétar Mar Jónsson og Óskar Þór Jónsson mættu á svæðið ásamt fleiri stuðningsmönnum og gerðu sér glaðan dag eins og meðfylgjandi myndir sýna, en myndirnar tók ljósmyndari Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi.
.