HSS
HSS

Aðsent

Framundan er tími uppbyggingar
Sunnudagur 18. nóvember 2012 kl. 13:14

Framundan er tími uppbyggingar

Kæru sóknarbörn.

Eins og flestum er kunnugt standa nú yfir umfangsmiklar framkvæmdir í kirkjunni okkar í Keflavík. Tilefnið er fyrst og fremst 100 ára afmæli kirkjunnar sem verður í febrúar 2015 en ekki síður að nauðsynlegt var orðið að gera endurbætur vegna þess að húsið var orðið lúið og slitið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Við slík tímamót er ekki annað hægt en að minnast á sögu Keflavíkurkirkju, þessa  heillandi sögu um fámenna, litla þorpið, sem vildi vegsemd fyrir sig og íbúana og reisti  kirkju, sem gat hýst nær alla fullorðna þorpsbúa í einu. Litla þorpið breyttist í blómlegan útgerðarbæ og  þegar 50 ára afmæli kirkjunnar nálgaðist var aftur kominn tími á vegsemdarauka og kirkjan var gerð upp í samræmi við tíðarandann. Nú, þegar 100 ára afmælið nálgast er enn þörf á að betrumbæta kirkjuna, koma henni í sína upprunalegu mynd og kaupa nýtt orgel, því á 50 árum verður mikið rask og kirkjan var farin að láta verulega á sjá.  

Saga kirkjunnar er nátengd sögu samfélagsins og hún er og nátengd tíðarandanum. Þær breytingar sem gerðar hafa verið í rás tímans hafa verið gerðar í samræmi við óskir samfélagsins og með stuðningi þess. Það er sérstök tilfinning að fá að vera þátttakandi í verkefni eins og þessu, verkefni sem tengir saman sögu þorpsins og kirkjunnar. Áhrifin á mig persónulega hafa verið þau að ég upplifi mig miklu sterkar sem Keflvíking eftir að hafa tekist þetta verkefni á hendur. Við þessa vinnu hefur verið unnin margvísleg rannsóknarvinna og margt hefur komið í ljós um sögu kirkjunnar og fólksins sem þar hefur starfað. Þeim upplýsingum mun verða haldið til haga og verða þær öllum aðgengilegar þegar fram líða stundir.

Keflavíkurkirkja er að verða 100 ára. Hún er orðin forngripur. Hún er ein af elstu steinsteyptu kirkjum landsins og einstaklega falleg, bæði í formi og stærð. Fegurð hennar felst einkum í því hve stílhrein hún er  og hvernig stærðarhlutföllin samsamast. Það eru engar óþarfar krúsidúllur eða skraut, kirkjan er einfaldlega formrænt falleg. Þegar safnaðarheimilið var byggt við kirkjuna á síðasta áratug síðustu aldar tókst vel til og nýtur kirkjan sín vel í tengslum við þá glæsilegu byggingu. En það sem öllu máli skiptir þó er að þessar byggingar eru ekki tóm glæsihýsi. Þar er fjölmargt fólk frá morgni til kvölds, í starfi og leik. Það gleður hjarta mitt sem sóknarnefndarformanns að á hverjum sunnudagsmorgni er kirkjan þétt setin af kirkjugestum á öllum aldri, en ekki síst unga fólkinu.

Kirkjan hefur gengið í gegnum margvísleg skeið á þessum 100 árum á sama hátt og bæjarfélagið Keflavík. Það hafa verið tímar endurskoðunar og framkvæmda, tímar sorgar og niðurrifs, tímar deilna og sundurþykkju og tímar hruns. Við teljum að framundan séu tímar uppbyggingar. Endurbætur á kirkjunni mega sín e.t.v. lítils í samanburði við þau stóru verkefni á sviði atvinnulífsins sem við bíðum eftir að komi til framkvæmda hér á Suðurnesjum. Allt hefur þó áhrif og við endurbæturnar hefur eingöngu verið leitað til þeirra frábæru fagmanna sem búa hér á svæðinu. Við erum sannfærð um að kirkjuskipið verði glæsilegt að loknum þessum breytingum. Von okkar er sú að helgidómurinn eigi eftir að minna okkur á merka fortíð þessa samfélags og hvetja okkur til þess að horfa björtum augum til framtíðar.

Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir
sóknarnefndarformaður