Framsóknarmenn með réttar áherslur í FS
Framsóknarmenn í Reykjanesbæ voru mættir fyrir framan Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir átta í morgun og afhentu nemendum áherslupenna sem átti að minna unga fólkið á þær réttu áherslur sem flokkurinn hyggst standa fyrir.Ekki var annað að sjá en unga fólkinu hafi litist vel á þetta framtak framsóknarmanna. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Þorsteini Árnasyni og Guðnýju Kristjánsdóttur frambjóðendum að afhenda penna í morgun.