Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Aðsent

Föstudagur 24. maí 2002 kl. 00:47

Framsókn ekki með njósnara!

Framsóknarflokkurinn í Reykjanesbæ ætlar ekki að vera með fólk í kjördeildum á laugardaginn til þess að fylgjast með hverjir kjósa og hverjir ekki en það hafa flokkarnir gert í áratugi.Í ljósi þess að margir kjósendur telja slíkt flokkast undir persónunjósnir hefur Framsóknarflokkurinn ákveðið að virða rétt kjósenda til þess að hafa það sem sitt einkamál, hvort þeir kjósa eður ei. Það telur Framsóknarflokkurinn vera í takt við auknar kröfur almennings um friðhelgi einkalífsins.

Frétt frá Framsóknarflokknum í Reykjanesbæ.
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Miðbæjareignir
Miðbæjareignir