Frambjóðendur gáfu uppáhellingu
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, þau Guðni Ágústsson, Bjarni Harðarson og Helga Sigrún Harðardóttir, tóku á móti viðskiptavinum í Samkaup Úrval í dag og gáfu þeim hið eina sanna Framsóknarkaffi. Pokinn dugar í eina uppáhellingu og má búast við að ilminn af rjúkandi Framsóknarkaffi eigi eftir að leggja frá mörgum heimilum næstu daga.
Mynd: Framsóknarkaffið rauk út í Samkaup í dag. Ljósm: Hilmar Bragi
Mynd: Framsóknarkaffið rauk út í Samkaup í dag. Ljósm: Hilmar Bragi