Frábær sýning!

Emilía Jónsdóttir, eiginmaður hennar Skúli Bjarnason, Berglind Skúladóttir, leikstjórinn Jón Marinó Sigurðsson og allir aðrir aðstandendur sýningarinnar eiga mikið hrós skilið fyrir framtakið. Það er ótrúlegt hversu miklu þau hafa náð út úr þeim tæplega 60 stelpum sem taka þátt í sýningunni.
Leikararnir, sem allir eru börn og unglingar, standa sig mjög vel. Ég vil ég ekki nefna einn frekar en annan enda erfitt að gera upp á milli þeirra. Ég skora á alla bæjarbúa, einstaklinga og fjölskyldur, unga sem aldna, að sjá þessa sýningu því það ætti enginn að missa af henni. Ég óska leikurunum og fjölskyldum þeirra innlega til hamingju með frábæra sýningu og Emlíu og hennar fólki óska ég til hamingju með 10 ára afmæli skólans.
Kjartan Már Kjartansson
leiðtogi B-listans í Reykjanesbæ