Forvarnir gegn kynferðisofbeldi
Miðvikudaginn 20. febrúar ætlar FFGÍR ( Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ) í samstarfi við foreldrafélög leikskólanna í Reykjanesbæ að bjóða upp á fyrirlestur um ofbeldi gegn börnum. Fyrirlesturinn er fyrir foreldra og aðra sem bera ábyrgð á börnum. Sigríður Björnsdóttir frá Blátt áfram, mun flytja erindi og svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn fer fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá klukkan 20-21.
FFGÍR og foreldrafélög leikskólanna í Reykjanesbæ