Formaður Heimis: vill sameiningu sýslumannsembættanna
Georg Brynjarsson formaður Heimis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ spyr í pistli á heimasíðu sinni www.georg.is í tilefni af fréttum um hugsanlega byggingu stjórnsýsluhúss á Keflavíkurflugvelli hvort ekki sé hægt að hagræða í löggæslumálum á Suðurnesjum. Georg segir m.a. í pistli sínum sem ber yfirskriftina „Stjórnsýsluhús eða tímaskekkja?“ að það hljóti að teljast ansi sérstakt og kostnaðarsamt að vera með tvo sýslumenn með nokkurra metra millibili. Í lok pistilsins veltir Georg upp þeirri spurningu af hverju umræða um sameiningu embættanna hafi ekki farið fram.
Hér má lesa pistil Georgs í heild sinni: „Stjórnsýsluhús eða tímaskekkja?“
Hér má lesa pistil Georgs í heild sinni: „Stjórnsýsluhús eða tímaskekkja?“