Foreldrar nú er lag!
Forvarnarverkefnið „Reykjanesbær á Réttu Róli” hefur ákveðið að bjóða foreldrum 6 ára barna í Reykjanesbæ uppá námskeið í uppeldi barna. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Félag foreldrafélaga grunnskóla í Reykjanesbæ og styrkt af aðildarfélögum og velunnurum í samfélaginu. Foreldrar þurfa þó sjálfir að greiða einhvern hluta námskeiðsins.
Ég hef kynnt mér námsefnið og tel að hér sé um frábært hjálpartæki að ræða í viðleitni foreldra til að gera enn betur við uppeldi barna sinna.
Þó foreldrahlutverkið sé eitt vandamesta starf sem nokkur einstaklingur tekur að sér á lífsleiðinni, hefur í gegnum árin ekki verið mikið framboð af námskeiðum eða öðrum aðgengilegum leiðbeiningum fyrir foreldra til að gegna því hlutverki.
Hjá Fjölskyldu- og félagsþjónustunni sjáum við oft fjölskyldur, bæði foreldra og börn, sem eru komin í miklar ógöngur, þar sem fjölskyldulífið og samskipti milli aðila eru í molum. Í engum tilvikum hefur það verið val fjölskyldumeðlima að þannig er komið málum, heldur hefur ástandið myndast smátt og smátt og aðgengileg hjálp ekki verið fyrir hendi. Fólk leitar í ríkara mæli til Fjölskyldu- og félagsþjónustunnar eftir aðstoð við uppeldi barna sinna og er það vel. En best er að foreldrar fái nauðsynlega fræðslu strax og foreldrahlutverkið hefst því þannig má frekar fyrirbyggja illleysanleg vandamál síðar í uppeldisferlinu.
Ég vil hvetja foreldra allra 6 ára barna í Reykjanesbæ, sem njóta þeirra forréttinda að fá tækifæri til að sækja námskeið í uppeldi barna sinni, til að sýna ábyrgð og skrá sig á námskeiðið. Ef vel tekst til má gera ráð fyrir að hér verði stigið fyrsta skrefið í löngu þörfu verkefni og er það von mín að námskeið í uppeldi barna, á öllum aldri, verði jafn sjálfsögð og önnur námskeið sem standa fólki til boða í dag.
Félagsmálastjórinn í Reykjanesbæ
Hjördís Árnadóttir