Flugvallarskattar felldir niður?

Til viðbótar við þá starfsemi sem nú fer fram í FLE stefnir í mikinn vöxt þar. Kanadíska flugfélagið er komið. Iceland Express er að hefja sig til flugs og viðræður við m.a. Ryan Air í gangi. Forsvarsmenn Iceland Express segja að félagið muni skapa 50-60 störf. Búið er að deiliskipuleggja svæðið umhverfis FLE og skapa þannig forsendur fyrir uppbyggingu atvinnusvæðis umhverfis FLE. Tollafgreiðsla á frakt hefur verið flutt suðureftir og framboð í vöruflutningum fer vaxandi. Í nýju tollgeymslu Flugleiða er t.d. lager fyrir mörg fyrirtæki og sækja þau þangað vörur sínar eftir þörfum. Allt felur þetta í sér mikil tækifæri fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum. Með vaxandi flugumferð um svæðið aukast umsvifin. Mikilvægt er að farþegum fjölgi einnig yfir vetrarmánuði. Ísland er að verða afar vinsælt ferðamannaland en dýr fargjöld hafa hamlað vextinum. Með afnámi flugvallaskatta, stækkun flugstöðvarinnar, deiliskipulagi svæðisins, vaxandi samkeppni fleiri flugfélaga og öðrum þáttum skapast forsendur fyrir mörgum nýjum atvinnutækifærum og störfum á Suðurnesjum. Því er sannarlega ástæða til að líta með bjartsýni til umsvifanna við FLE. Svæðið er að taka á sig svipaða mynd og sjá má víða erlendis við alþjóðaflugvelli þar sem mörg fyrirtæki blómstra í skjóli flugsins. Keflavíkurflugvöllur er sannarlega ein af auðlindum Suðurnesja,
Hjálmar Árnason,
alþingismaður.