Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Alex ehf. undirrita samning um rekstur í flugstöðinni
Alex ehf. hefur gert samning við Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. um rekstur bifreiðageymsluþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
Geymsla bifreiða er mikilvæg þjónusta við flugfarþega er fara um Flugstöð Leifs Eiríkssonar og því mikilvægt að flugfarþegar hafi greiðan og öruggan aðgang að móttöku og afhendingu bifreiða í flugstöðinni. Því efndi Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. til forvals um rekstur slíkrar þjónustu.
Alex ehf. uppfyllti skilyrði forvals og var því gengið til samninga um aðstöðu í flugstöðinni. Samningurinn er einn þáttur í að bæta þjónustu við flugfarþega auk þess að auka hlut einkaaðila í flugstöðinni en sú stefna var mótuð þegar ráðist var í forval. Þess er vænst að breytingarnar muni treysta flughöfnina í sessi sem vinsælan viðkomustað sem stenst samanburð við bestu flughafnir í heimi.
Alex ehf. býður viðskiptavinum sínum að geyma bíla sína innandyra á meðan á ferðalagi stendur sem og þrif og almennt viðhald á bifreiðum fyrir farþega. Fyrirtækið þjónustar einnig vildarklúbb Icelandair.
Guðmundur Þórir Einarsson framkvæmdastjóri undirritaði samninginn fyrir höndAlex ehf. og Stefán Jónsson forstöðumaður fasteignasviðs fyrir hönd Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.
Á mynd eru: Guðmundur Þórir Einarsson framkvæmdastjóri Alex ehf. og Stefán Jónsson forstöðumaður fasteignasviðs Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf.