Fjórtánda starfsár níu til tólf ára starfsins í Útskálakirkju hefst

Í vetur verður vináttan og kærleiksboðskapur Jesú Krists í fyrirrúmi. Samveran byggist upp á fræðslu, bænum, söng, leikjum, spuna, iðju og vettvangsferðum. M.a hafa börnin farið í fjöruna til að ná í steina í krossinn sem sést hér á myndinni. Fyrirhugað er að syngja á Garðvangi og víðar, enda sýndi hópurinn strax á þessari fyrstu samveru, hvað í honum býr og söng af miklum krafti.
NTT börnin hafa frá upphafi farið á vormót í Vatnaskógi, þar sem börn úr mörgum öðrum kirkjum koma saman undir stjórn frábærra leiðtoga.
Stundum hafa börnin safnað fyrir ferðunum m.a. með sölu á skrautrituðum bænum, íkona-englamyndum og glösum með mynd af Útskálakirkju, en oftast hefur sóknarnefndin styrkt þau til ferðarinnar og alltaf sýnt þessu starfi mikinn hlýhug og áhuga. Nú síðast kom formaðurinn Jón Hjálmarsson færandi hendi með DVD tæki sem kemur að góðu gagni bæði til að sýna efni sem tekið verður upp á fundum s.s. leikatriði og stuttmyndir. Einnig hefur fræðsludeild kirkjunnar látið framleiða efni á DVD sem ætlað er til nota í barnastarfinu, svo þessi gjöf er velþegin.