Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Fjölskyldustefna óskast!
Þriðjudagur 18. febrúar 2014 kl. 09:22

Fjölskyldustefna óskast!

– Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar

Góð og virk fjölskyldustefna er nauðsynleg bæjarfélagi á borð við Reykjanesbæ og íbúum þess. Fátækt á ekki að líðast á Íslandi og því er brýnt að koma fátækum fjölskyldum til bjargar svo skólabörn og unglingar nái að dafna með farsælum hætti og nái að undirbúa sig undir vinnumarkað og fjölskyldulíf.

Nú býð ég mig fram í prófkjöri sjálfstæðisflokksins, sem fram fer þann 1. Mars nk., og leita eftir stuðningi þínum í sjöunda sætið. Ég er mjög fús að takast á við ný viðfangsefni, sem eru mér einkar hugleikinn en þó ekki ókunnug, og vil beina kröftum mínum í spennandi uppbyggingastarf, sem framundan er í bæjarfélaginu og reyndar þjóðfélaginu öllu, íbúum til hagsældar.

Íslendingar hafa á sér gott orð úti í heimi sem dugmikil þjóð, sem gefst ekki svo auðveldlega upp. Þeir eru skapandi á öllum sviðum mannlífsins og eru fljótir að tileinka sér nýjungar. Þær fjölmörgu skapandi greinar, sem nú blómstra á Íslandi, bera vott um hugmyndaauðgi og bjargfestu þjóðarinnar. Íslendingar eru hjálpsamir og liggja ekki á liði sínu, ef þeir geta komið náunganum til aðstoðar. Náungakærleikurinn er vissulega til staðar, þegar á bjátar.

Því miður mættu hinir fullorðnu hinsvegar hugsa betur um skyldur sínar og atlæti gagnvart börnum sínum svo úr umhverfinu nái að vaxa heilbrigðir dugandi einstaklingar. Reglur og markmið eru þar mikilvæg tæki og ríkur þáttur í uppeldi og vernd barna. Það er t.d. góð og nauðsynleg regla að líta ávallt til hægri og vinstri áður en gengið er yfir götu. Það er skylda hinna fullorðnu að undirbúa ungviðið sem best undir fullorðinsárin, hvort sem litið er til heilsu, næringar eða framtíðarinnar almennt.

Til að skilja þarfir og tilfinningar barna, þurfa hinir fullorðnu að vera vel á verði og beita virkri hlustun þegar börn og ungmenni þurfa að tala og ræða sín mál. Gott atlæti á mótunarárum hefur jákvæð áhrif á þroska, nám, sjálfstæði og almennt heilbrigði sem fylgir þeim eftir að þau fljúga úr hreiðrinu. Nauðsynlegt er að foreldrar, kennarar og aðrir, sem koma að uppeldi barna, séu víðsýnir og hafi hag ungviðisins og traust foreldra ávallt að leiðarljósi í störfum sínum. Þannig náum við árangri. Við þurfum öll að taka höndum saman með fjölskyldum, sem eiga erfitt uppdráttar, með jöfnuði og hagsæld fyrir alla. Saman erum við sterk og saman, en ekki sundruð, náum við að sigla í átt að lygnum sjó og markmiðum um aukna hagsæld og meiri lífsgæði.

Takk fyrir.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
Stefnir í 7.sæti.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024