Fjölskyldudagur á Ránni
Fjölskyldan -Líknarfélag stendur fyrir fjölskyldudegi á Ránni í samvinnu við Björn Vífil. Fjölskyldan -Líknarfélag er kristilegt félag sjálfboðaliða sem vinna að mannúðarmálum í víðum skilningi hér á landi og víðar. Þeir hafa látið til sín taka við trúboð og ýmiss hjálparstörf víðs vegar í heiminum bæði meðal ríkra þjóða sem fátækra.
Börnin koma.
Dagskráin nefnist börnin koma. Fjölskyldudagur á Ránni, sunnudaginn 14. desember kl. 14-16.
Dagskráin hefst með hugvekju sem Ástríður Sigurðardóttir guðfræðingur flytur. Svo fáum við trúð sem býr til falleg og skemmtileg blöðrudýr.
Leiklestur úr bókaflokknum „Þroskandi sögum“ sem Fjölskyldan-Líknarfélag gefur út í íslenskri útgáfu. Svo verða sungin ýmis jólalög og söngvar sem tengjast jólunum.
Guðbjörg Sigurðardóttir þýðandi bókanna segir frá og les kafla úr bókinni Jólaleyndarmál, sem er heillandi saga sem öll börn vilja hlusta á. Að lokum kemur jólasveinninn Giljagaur og vitið hvað hann verður með í pokanum. Öllum heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir og gleymið ekki jólaskapinu. Börnum verður gefið gos og kaka og fullorðnir fá kaffi og piparkökur.
Fréttatilkynning.