Fjárfestingar í Helguvík skila árangri
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ fagnar undirritun samninga um uppbyggingu Kísilvers í Helguvík. Við brotthvarf varnarliðsins töpuðust hundruð starfa sem var mikil blóðtaka fyrir íbúa og atvinnulíf á Suðurnesjum. Síðan hefur bæjarstjórnin í Reykjanesbæ, undir styrkri forystu bæjarstjórans, unnið kröftuglega að því að skapa vel launuð og traust atvinnutækifæri. Fjárfesting bæjarins í uppbyggingu í Helguvík er hluti af þeirri vinnu sem nú er að gefa ávöxt.
Þó svo að uppbygging Kísilvers, með þeim fjölda starfa sem þar skapast, sé mikið fagnaðarefni, er mikilvægt að haldið sé áfram. Fagnar fulltrúaráðið því orðum bæjarstjóra Reykjanesbæjar um að álversverkefnið sé næsta mál á dagskrá. Gagnaver og Sjúkrahúsverkefni á Ásbrú eru heldur ekki langt undan.
Brýnir fulltrúaráðið því fyrir bæjarstjórnarfólki á Suðurnesjum, sem og þingmönnum kjördæmisins, að taka ekki augun af boltanum og standa saman að áframhaldandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Verkefnin eru til staðar og handan við hornið ef samvinna er í forgrunni.
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ