Bygg
Bygg

Aðsent

Fitjar ekki losunarstaður fyrir húsbíla
Mynd úr safni.
Þriðjudagur 13. ágúst 2013 kl. 09:10

Fitjar ekki losunarstaður fyrir húsbíla

Opið bréf til Húsbílaleiga á Suðurnesjum

Þegar menn setja á stofn fyritæki þá fylgir því ábyrgð. Þið hjá húsbílaleigunum hafið gleymt að gera ráð fyrir aðstöðu fyrir leigutaka til að losna við matarleifar og annað sorp eftir að ferð lýkur. þegar þeir koma til baka koma þeir gjarnan við á Fitjunum og losa þar matarúrgang og fleirra sorp og í sumum tilfellum þá reyna þeir að losa úr klósettunum og vöskunum og hafa gert það á þvottarplanið við Bensínorkuna.

Þar sem þetta svæði er ekki losunarstaður fyrir húsbíla, þá vill ég beina því til ykkar að þið látið þá sem leigja hjá ykkur húsbíla vita að það sé ekki losunarstaður fyrir húsbíla hér á Fitjum. Þeim er velkomið að þvo Húsbílana hér á þvottaplaninu og nota ryksuguna að lokinni ferð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Valur Margeirsson
Fitjavík ehf