HSS
HSS

Aðsent

Mánudagur 10. nóvember 2003 kl. 14:15

FFGÍR með fyrirlestur fyrir foreldra grunnskólabarna

FFGÍR  foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ halda sinn sameiginlega  haustfyrirlestur  í Njarðvíkurskóla  fimmtudaginn 13. nóvember  n.k. kl. 20:00. Að þessu sinni fá foreldrar fyrirlestur um kynhegðun unglinga og hlutverk foreldra í kynfræðslu.  Fyrirlesarar eru þær Dagbjört Ásbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍTR og Sigurlaug Hauksdóttir, félagsráðgjafi Landlæknisembæti. Umræðuefnið er:

· Fjölmiðlar og kynfræðsla unglinga
· Kynhegðun og sjálfsmynd
· Staðreyndir um kynheilbrigði íslenskra unglinga – tölfræðilegar upplýsingar
· Mikilvægi og hlutverk foreldra í kynfræðslu barna og unglinga – hvaða leiðir er hægt að fara

Dagbjört Ásbjörnsdóttir er með BA gráðu í mannfræði og MA í kynja- og kynlífsfræðum. Hún hefur unnið með unglingum fyrir Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur í  fimm ár og hefur verið að vinna að málefnum er varða kynlíf og kynhegðan unglinga undanfarið ár.  Hún situr í Fræðslusamtökum um kynlíf og barneignir,  FKB. Sigurlaug Hauksdóttir er menntaður félagsráðgjafi og hefur undanfarin 6 ár unnið með alnæmissmituðu fólki, auk þess sem hún hefur í 5 ár unnið sem ráðgjafi á Neyðarmóttökunni vegna nauðgana þar sem ungt fólk er stór hópur þolenda.

Allir foreldrar velkomnir . Ókeypis þátttaka.
Unglingarnir velkomnir með!
Bílakjarninn
Bílakjarninn