Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Ferðasýningin Mannamót fer yfir íslenska ferðaþjónustu
Arnheiður Jóhannsdóttir.
Miðvikudagur 17. janúar 2018 kl. 05:00

Ferðasýningin Mannamót fer yfir íslenska ferðaþjónustu

Framundan er ferðasýningin Mannamót sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna í samstarfi við Flugfélagið Erni. Á þessari sýningu koma saman ríflega 200 ferðaþjónustufyrirtæki af öllu landinu og kynna starfsemi sína fyrir gestum sem koma frá ferðaskrifstofum á höfuðborgarsvæðinu og erlendis frá, stoðkerfi ferðaþjónustunnar og úr ferðaþjónustutengdu námi. Ekki síður er mikilvægt að á þessum degi nota menn tækifærið til að hitta samstarfsaðila, efla tengslin og ræða stóru málin. Mannamót, sem er fimm ára í ár, hefur vaxið á hverju ári og er nú orðinn einn af mikilvægustu viðburðum ferðaþjónustunnar á hverju ári. Vettvangurinn styður við stærstu áskorun íslenskrar ferðaþjónustu, sem er að bæta nýtingu auðlindarinnar og tryggja að henni sé skilað áfram til næstu kynslóða svo hægt sé að byggja upp til lengri tíma og skila landi og þjóð arð af þessari auðlind um ókomna tíð.

Byggja verður ferðaþjónustu upp sem öfluga atvinnugrein og í sátt við náttúruna, umhverfi og samfélag. Til að ná þessu fram þarf að ráðast í ýmis verkefni og má þar nefna áskoranirnar um að bæta dreifingu ferðamanna um landið og jafna árstíðasveifluna um allt land. Árangur í þessum stóru forgangsmálum styður við uppbyggingu ferðaþjónustufyrirtækja í öllum landshlutum, þar sem þau geta öll bætt nýtingu sinna fjárfestinga með því að ná sem mestum arði úr auðlindinni okkar sem er náttúra og mannlíf á Íslandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nú er staðan sú að á Suðurlandi, Vesturlandi, Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu hefur náðst góður árangur í að efla vetrarferðaþjónustu og minnka árstíðasveifluna. Þessi árangur hefur dregið að sér fjárfesta sem byggja upp öfluga afþreyingu, gistingu og veitingaþjónustu. Ríflega 80% fyrirtækja á þessum svæðum er nú í heilsársrekstri sem er lykilatriði í uppbyggingu ferðaþjónustu, skilar sér í öflugra starfsfólki og uppbyggingu svæða þar sem nú eru til staðar ný og spennandi atvinnutækifæri. Vestfirðir, Norðurland og Austurland eiga enn óinnleyst tækifæri í uppbyggingu utan háannatíma vegna skorts á öruggum samgöngum en sú uppbygging mun skila sér í gríðarlegum ávinningi fyrir landið allt þegar náðst hefur að byggja þar upp ferðaþjónustuna sem heilsárs atvinnugrein.

Vaxtartækifærin í ferðaþjónustunni eru mikil og gríðarlegur hraði í þróun greinarinnar. Því er nauðsynlegt að til sé heildstæð áætlun bæði til að grípa tækifærin sem skapast og ekki síður til að geta gripið inn í neikvæða þróun þar sem nauðsynlegt er. Markaðsstofur landshlutanna vinna nú í samstarfi við Ferðamálastofu og Stjórnstöð ferðamála að áfangastaðaáætlunum DMP sem ætlað er að svara kalli ferðaþjónustunnar eftir skýrri stefnu til stuðnings við sína uppbyggingu og framkvæmd fjárfestingarverkefna. Í þessari vinnu, sem mun stuðla að uppbyggingu, þróun og vexti, er öflugt samtal hagsmunaaðilanna þ.e. ferðaþjónustufyrirtækjanna og sveitarfélaga lykilatriði en sveitarfélögin eru nú flest farin að sjá ferðaþjónustuna skila þeim miklum tekjum, uppbyggingu og jákvæðum áhrifum á samfélagið. Sýningin Mannamót er frábært vettvangur til að efla þetta samtal og óhætt að segja að á undanförnum árum hafi orðið þar til góðar hugmyndir sem öflugir aðilar hafa síðan hrint í framkvæmd.

Arnheiður Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands