Fatlað fólk á tímamótum - fundur í Reykjanesbæ í dag
Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands, Fatlað fólk á tímamótum, eru mannréttindi virt? Fundur verður í Reykjanesbæ í dag, 1. febrúar kl. 16 - 18.
Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni upplýsingafundi víðs vegar um landið. Fyrsti fundurinn verður á Nesvöllum í Reykjanesbæ þriðjudaginn 1. febrúar nk. kl. 16.00 - 18.00.
Efni fundar:
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun og ný hugmyndafræði. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ.
Ný lög um málefni fatlaðs fólks. Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ.
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ.
Raddir sveitarstjórnarmanna og notenda eða mögulegra notenda.
Notendastýrð persónuleg aðstoð kynnt ásamt fyrirhugaðri Þekkingar- og þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar. ?
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks ásamt þeim sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir á fundinn.
Mætum öll
Ekkert um okkur án okkar