Eru kosningar framundan?
Þegar ég fór að skoða blöðin í gærkvöldi sá ég opnu viðtal við Jón Gunnarsson í Víkurfréttum, allt gott um það að segja einnig sá ég grein bæði í Víkurfréttum og Tíðindum frá Gunnari Örlygssyni þigmanni Sjálfstæðisflokks þar sem hann stiklar á stóru um vandamál Grindvíkinga og telur vandalaust að berja í gegn breytingar til að bæta úr vandamálum okkar Grindvíkinga. Vil ég í því sambandi benda honum á að HANN ER þingmaður á Alþingi Íslendinga og HANN ER Í STJÓRNALIÐINU. Því hlýtur hann að laga þessa stöðu á þinginu sem er að hefjast. Ég mun síðar fara yfir afgreiðslu Heilbrigðisráðherra og ráðuneytis í grein, enda alveg ótrúleg framkoma í garð Grindvíkinga. Einu get ég þó verið sammála Gunnari um en það er að okkur Grindvíkingum vantar öflugan fulltrúa á alþingi skref í þá átt er hægt að taka í prófkjöri Samfylkingarinnar þann 4 nóv næst komandi með því að tryggja undirrituðum 3-4 sæti í prófkjörinu.
Með kveðju Hörður Guðbrandsson
Minni á Heimasíðuna mína www.Hordurgudbrandsson.blog.is