Er Reykjavíkurborg á „flippi“- flugvöllurinn í Keflavík verði kenndur við Reykjavík?
Í erindi Svanhildar Konráðsdóttur, sviðsstjóra menningar- og ferðmálasviðs, á fundi Faxaflóahafna nýverið kom fram að aðgerðaráætlun Reykjavíkur, sem hún kynnti, sé unnin út frá gildandi Ferðamálastefnu
borgarinnar. Ákveðið hafi verið endurskoða allar aðgerðir í ljósi aukins fjölda ferðamanna.
Í drögunum er lögð áhersla á að sveitarfélög fái eðlilega og sanngjarna hlutdeild í beinum skatttekjum hins opinbera af ferðaþjónustu.
Gildandi stefna borgarinnar felur það meðal annars í sér að aðalflugvöllur Íslands verði kenndur við Reykjavík og að „hlið“ Reykjavíkur fái ásýnd gestrisni með merkingunum „Reykjavik Loves“.
Halda mætti að Reykjavíkurborg sé eina sveitarfélagið á Íslandi sem skipti máli þessa dagana. Ekki nóg með að borgin vilji stela nafninu af „Keflavíkurflugvelli“ og skaða almenn markaðssetningu til tugi ára hjá
sveitarfélögunum á suðurnesjum auk fyrirtækja og stofnana. Ofan á þetta bætast hugmyndir þeirra um að flytja flugvöllinn til Hafnarfjarðar.
Á að leggja Suðurnesin af? Ég held að ráðandi aðilar í Reykjavíkurborg þurfi að líta í eigin barm og byrja að haga sér eins og „eðlileg höfuðborg“. Höfuðborgin þarf á sterkri landsbyggð að halda, án landsbyggðarinnar er enginn höfuðborg.
Skilaboðin okkar eru alveg eru skýr. Hættið að reyna að taka nafnið af okkur Suðurnesjamönnum, þetta er og verður áfram Keflavíkurflugvöllur.
Friðjón Einarsson
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar