Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Fimmtudagur 6. febrúar 2003 kl. 10:11

Er Kallinn grænn í gegn?

MIKIÐ VAR Kallinn glaður að lesa um það að bæjarstjórn Sandgerðisbæjar hafi ákveðið að leggja 5 milljónir til atvinnumála í bænum – þeir hafa greinilega svarað kalli Kallsins. Það sem er hins vegar skrýtið er sú „tilviljun“ að tillaga meirihlutans er nákvæmlega eins og tillaga sem minnihlutans ætlaði að leggja fram á fundinum. Tillaga meirihlutans var nefnilega ekki inn í þeim fundargögnum sem bæjarfulltrúar fengu send heim. Þeir hafa semsagt frétt af því að minnihlutinn ætlaði að leggja fram tillögu um að veita 5 milljónum út í atvinnulífið í Sandgerði og gripið tækifærið og gert tillögu minnihlutans að sinni tillögu. Frumlegt – nei, en svona er víst pólitíkin í dag. En gott mál samt!

ÞÓRUNN Friðriksdóttir sem á sæti á lista Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi sendi Kallinum bréf þar sem hún sagðist ekki hafa getað svara Kallinum varðandi fátæktarumræðuna vegna veikinda. Þórunn hefur verið veik og það er fullgild ástæða fyrir því að senda ekki svar. Hún vill svara og Kallinn vill fá svar. Hinsvegar hefur ekkert heyrst frá Árna Ragnari – honum er víst sama um fátækt í Reykjanesbæ!

SLYS COLUMBIA geimskutlunnar var hörmulegt og fylgdist heimsbyggðin með slysinu í beinni útsendingu. Slysið sýnir hve hættulegt starf geimfarar NASA vinna í þágu vísindanna. Kallinum barst þó ábending frá glöggum lesanda Víkurfrétta varðandi merki áhafnarinnar. Í merkinu er nefnilega blossi sem líkist mjög sprengingu. Spurning hvort þarna hafi verið um fyrirboða að ræða. En Kallinn vottar aðstandendum áhafnarinnar samúð sína.

ÞAÐ ER EKKI oft sem kvikmynd af Suðurnesjum er frumsýnd en á næstu dögum verður kvikmyndin „Didda og dauði kötturinn“ frumsýnd. Kallinum hlakkar mjög til að sjá myndina og efast ekki um að hún sé skemmtilega, enda er söguþráðurinn mjög spennandi. Kallinn óskar Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur höfundi myndarinnar innilega til hamingju með myndina og óskar þess að hún haldi áfram að skrifa. Fyrir frumsýningu í leikhúsunum er sagt „break a leg“ og segir Kallinn það sama við Kristlaugu.

KALLINN fékk bréf um daginn frá lesanda sem fullyrti að Kallinn væri framsóknarmaður. Lesandinn sagði að hann teldi að Kallinn stæði á grænum kassa. Sjálfsagt hefur þessi einstaklingur myndað sér ákveðna skoðun út frá skrifum Kallsins og ályktað sem svo að Kallinn væri framsóknarmaður. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er Kallinn óflokksbundinn og hefur skynsemina að leiðarljósi, en ekki handónýta pólitík. Reyndar er mjög gaman að fylgjast með ungum mönnum mynda sér skoðun eftir flokkslínum og sjá hvað þeir eru hugmyndasnauðir þegar kemur að því að ræða ákveðin mál. Oftar en ekki er heilaþvottur stjórnmálaflokkanna svo mikill að hið einfaldasta mál í hugum margra getur orðið að flóknu máli í meðförum stjórnmálaskörunganna og liðsmanna þeirra. Í huga Kallsins skiptir mestu máli að skynsemin ráði för, en ekki það sem pólitíkusarnir segja vera rétt eða ekki rétt.

REYNDAR er komin ólykt af pólitíkinni á Íslandi í dag. Samfylkingin er orðin að pólitísku miðjumoði og stendur á sama stalli og Framsóknarflokkurinn og vinstri vængur Sjálfstæðisflokksins. Vinstri Grænir eru töluvert langt til vinstri og eins og góðum kommúnistaflokki sæmir er flokkurinn á móti nær öllum framförum. Frjálslyndi flokkurinn berst gegn kvótakerfinu og Kallinn hefur ekki enn áttað sig á öðrum stefnumálum flokksins. Eins og gamall maður sagði eitt sinn þegar Kallinn vann upp á Keflavíkurflugvelli: „Þetta helv... er allt saman handónýtt, ég vil fá að kjósa menn með hugsjónir á þing.“

KRISTJÁN Pálsson á þing - þar fer maður með hugsjónir!

Kveðja, [email protected]
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024