Er íslenska ríkið í samkeppni við Suðurnes?

Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Valgerður hefur algjörlega hundsað Suðurnesin þegar kemur að skoðun á mögulegri stóriðju og haldið fram ,fyrst Austfjörðum og síðan Norðurlandi, sem fýsilegum stöðum til uppbyggingar slíkra atvinnutækifæra. Þetta gerir ráðherrann þrátt fyrir þá staðreynd að á Suðurnesjum eru a.m.k. tvö ákjósanleg svæði fyrir svona starfssemi þ.e. í Helguvík og á Keilisnesi. Rétt er að minna á að þegar erlendir aðilar leituðu að stað til að byggja upp álver á árunum 1980-1990 þá fór fram viðamikil staðarvalsathugun, sem framkvæmd var á viðskiptalegum forsendum án beinna afskipta eða fyrirmæla frá stjórnvöldum, sem leiddi í ljós að á þeim tíma taldist Keilisnes besti kostur fyrir svona starfssemi á landinu öllu.
Síðan þá hafa Hitaveita Suðurnesja og Orkuveita Reykjavíkur hafið mikla raforkuframleiðslu á suðvesturhorni landsins sem ætti að gera Suðurnes enn fýsilegri kost en áður var. Þrátt fyrir þessar staðreyndir þá ætlar ráðherrann að beita íslenska ríkinu í samkeppni við Suðurnes og ekki bara að láta duga að hundsa svæðið, heldur nota ríkið til að keppa gegn heimamönnum í viðleitni þeirra við að byggja upp þróttmikið atvinnulíf á svæðinu.
Ráðherra á villigötum!
Ég fagna frumkvæði heimamanna varðandi þá viljayfirlýsingu sem undirrituð hefur verið varðandi skoðun á byggingu álvers í Helguvík og geri þá kröfu til ráðherrans að hún láti þegar af þessari hegðun sinni og að Suðurnes standi jafnfætis öðrum landssvæðum þegar kemur að afskiptum íslenska ríkisins. Það hlýtur að vera krafa að íslenska ríkinu sé ekki beitt til hagsbóta fyrir eitt byggðalag eða svæði og þá gegn öðru í málefnum sem þessum.
Jón Gunnarsson
alþingismaður Samfylkingar