Bygg
Bygg

Aðsent

 Er allt í kalda koli?
Sunnudagur 4. desember 2011 kl. 14:14

Er allt í kalda koli?


Það hefur verið verulega neikvæð umræða um margt á Suðurnesjum eftir að kreppan skall á. Hér er mesta atvinnuleysið og allt virðist í kalda koli. Við hér á Víkurfréttum finnum þetta eins og aðrir, í samskiptum okkar við fólkið á götunni og eins viðskiptaaðila, bæði hér og fyrir utan Suðurnesin. Aðilar utan svæðis spyrja okkur hvort það sé virkilega eitthvað að gerast. Við höfum bent á að þrátt fyrir slæmt umtal séu um 90% fólks á svæðinu með vinnu og hér sé margt gott í gangi, bæði í menningu, íþróttum og samfélaginu almennt. Hér fer fólk á menningarviðburði og kaupir mjólk og brauð, fatnað og hvað sem er. Ekki skal þó gert lítið úr erfiðu árferði en Suðurnesjamenn hafa áður gengið í gegnum kreppu. Saman komumst við í gegnum hana. Þegar maður heyrir svona umræðu þá er það samt svo að viðhorf okkar, íbúanna á svæðinu, skiptir máli. Hvernig svörum við svona spurningum? Og hvernig styrkjum við samfélagið okkar? Jú, viðhorfið þarf að vera jákvætt enda er hægt að benda á margt jákvætt. Hér er verið að vinna gott starf á mörgum sviðum. Menningin hefur sjaldan verið öflugri og nýlega fengu á fjórða tug af um sextíu umsækjendum styrk frá Menningarráði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Núna er Leikfélag Keflavíkur t.d. að sýna frábært leikrit og Gral, leikhús Grindvíkinga, var að ljúka við sýningar. Margt er í pípunum. Allmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa sprottið upp, nokkur fyrirtæki hafa eða eru að bæta við sig starfsfólki. JÁ upplýsingaveitan var ekki alls fyrir löngu með sex starfsmenn en nú starfa þar um 50 manns. Framundan er fastráðning 40-50 nýrra starfsmanna á flugverndarsviði Isavia, í „stóriðjunni“ Leifsstöð. Á næsta ári má búast við enn fleiri störfum þar en í sumar en þá voru mörg hundruð Suðurnesjamenn við störf þar. Hér hefur bara verið tæpt á nokkrum dæmum.

Heklan, nýstofnað atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hefur nýlega skipað stýrihóp um ímynd Suðurnesja. Auðveldum þeim hluta vinnunnar með því að vera sjálf á jákvæðu nótunum. Þetta snýst einu sinni um viðhorfið. Því getum við ráðið þó svo að við séum í ólgusjó. Bros er t.d. gríðarlega sterkt!


Víkurfréttir og verslanir á Suðurnesjum blása nú í ellefta sinn til jólaátaksins, Jólalukku VF. Þar sameinast nærri tveir tugir viðskiptaaðila með þátttöku annarra tuttugu í því að hvetja fólk til að gera jólainnkaupin á Suðurnesjum. Þúsundir jólaskafmiða með fimm þúsund vinningum munu verða afhentir á næstu dögum og vikum til þeirra sem beina viðskiptum sínum til þessara aðila, Suðurnesjamönnum til heilla fyrir þessi jól.


Bílakjarninn
Bílakjarninn