Ekki skýrt dæmi hjá Guðbrandi
Marzellíus Sveinbjörnsson, oddviti framsóknar í Ísafjarðarbæ, svarar grein Guðbrands Einarssonar.
„Guðbrandur Einarsson, fer mikinn hjá Víkurfréttum og reynir af veikum mætti að réttlæta ákvarðanir meirihlutans í Reykjanesbæ um að meina Framsóknarflokknum um áheyrnarfulltrúa. Ekki eru það of miklar kröfur sem gerðar eru til bæjarfulltrúa að hann að kynna sér þau mál sem hann vitnar í og byggir „rök“ sín á,“ segir Marzellíus Sveinbjörnsson, oddviti framsóknar í Ísafjarðarbæ, í orðsendingu sem hann sendi Víkurfréttum rétt í þessu.
Marzellíus vitnar síðan í orð í grein Guðbrands Einarssonar á vef Víkurfrétta: Ég hefði átt að nefna skýrara dæmi og geri það hér með. Sama staða og hér er, kom upp á Ísafirði þar sem Framsóknarflokknum var ekki heimiluð seta í nefndum (sjá hér).
Marzellíus bætir svo við: „Þetta er síður en svo skýrt dæmi um það sem bæjarfulltrúinn vill halda fram. Framsóknarflokknum á Ísafirði á áheyrnarfulltrúa í nefndum og ráðum á vegum Ísafjarðarbæjar eins og meðfylgjandi bókum bæjarráðs Ísafjarðarbæjar ber með sér og ekki aðeins það, heldur hefur hann málfrelsi og tillögurétt einnig. Fyrir þá afstöðu meirihlutans á Ísafirði að veita áheyrnarfulltrúum okkar málfrelsi og tillögurétt ber að þakka. Það er því af og frá að bæjarfulltrúinn Guðbrandur sé að túlka fréttina rétt enda segir aðeins í henni að meirihlutinn hafi ekki gefið eftir sæti til Framsóknarflokksins, þ.e.a.s. að Í listinn ætlar að halda öllum sínum föstu fulltrúum sem er ofureðlilegt.“.
Með orðsendingunni fylgir bókun bæjarráðs Ísafjarðarbæjar í málinu:
22. Áheyrnarfulltrúar Framsóknarflokks í nefndum Ísafjarðarbæjar. 2014-06-0094.
Lagt fram bréf Marzellíusar Sveinbjörnssonar, oddvita Framsóknarflokksins á Ísafirði, þar sem þess er farið á leit að flokkurinn fái áheyrnarfulltrúa með tillögurétt í nefndum Ísafjarðarbæjar.
Bæjarráð samþykkir að Framsóknarflokkurinn í Ísafjarðarbæ fái umbeðna áheyrnarfulltrúa. Bæjarráð vísar þeim hluta beiðninnar er varðar greiðslur fyrir fundarsetu til nýrrar nefndar um íbúalýðræði