Bygg
Bygg

Aðsent

„Ekki hugmynd“
Miðvikudagur 16. nóvember 2005 kl. 15:08

„Ekki hugmynd“

Raunasaga mín hófst þann 17. ágúst er ég flutti til Danmerkur og þegar  ég lenti á áfangastað og fór að sækja farangurinn minn en ég fékk bara 2 töskur af 3. Ég setti mig þá í samband við SAS og þeir tóku upplýsingar hjá mér hvar væri hægt að ná í mig.

Síðan heyri ég ekkert í þeim í smá tíma þangað til að ég hringi sjálfur. Þá segja þeir hjá SAS að Flugleiðir eigi að sjá um þetta, ég hringi þá til Íslands og tala við tapað fundið og innritunarþjónustuna og þeir kannast ekki við eitt né neitt. Svona gengur þetta í næstum 2 vikur.
Eftir mikla eyðslu á að hringja í Flugleiðir af móður minni, mér og fleirum sem voru komnir í að finna töskuna mína sem innihélt mest af farangri mínum. Síðan er það eina sem þeir bjóða manni, eftir að hafa týnt farangrinum mínum, 600 kr. danskar sem eru um 6 þúsund íslenskar.

2 vikum síðar, eftir allt þetta vesen hjá þeim, þá finna þeir töskuna í London. Ég fæ hana svo og eiginlega allt dótið mitt horfið. Síðan kem ég heim núna í nóvember og fer strax í það að fá þetta sem að þeir hjá Flugleiðum glötuðu fyrir mér borgað til baka. Þeir láta mig hafa staðfestingu á því að þeir hafi týnt farangrinum mínum og segja mér að fara með það í tryggingarnar mínar. Ég geri það með glöðu geði en þegar að ég kem til tryggingafélagsins tjá þeir mér að Flugleiðir beri fulla ábyrgð á því sem glatast í farangrinum. Ég segi það við þjónustudeildina hjá Flugleiðum að tryggingarnar mínar hafi sagt þetta við mig og sendi þeim listann sem glataðist.

Stuttu seinna fæ ég tölvupóst frá þjónustudeild Flugleiða og mér kynnt að þeir borgi ekki raftæki og biður mig um að koma með kvittanir.

Ég sendi til baka að ég hefði engar kvittanir en gæti alveg farið niðri búð og fengið verð og nótur. Ég geri það og sendi svo þjónustudeild Flugleiða og fæ svo aftur tölvupóst um að þeim vanti kennitölu mína og bankanúmer. Ég sendi þeim allar upplýsingar. Daginn eftir sendi ég og spyr hvort að ég eigi að bíða jafn lengi eftir að fá þetta borgað til baka og þegar ég þurfti að bíða eftir farangrinum mínum. Fæ svo tölvupóst frá þjónustudeildinni um að þessar nótur væru ekki nógu góðar til að geta borgað mér til baka.

Ég hringi til baka og fæ bara hræðilega þjónustu frá þeim og engin svör um hvað sé í gangi. Tala svo við Jóhann sem er yfir þjónustudeildinni og hann segir að þeir vilji kassakvittanir. Ég spyr hann hvort að sé ekki allt i lagi því að heilbrigður maður ætti ekki kassakvittanir eftir kannski ár eða meira. Síðan spyr ég hver borgi mér raftækin fyrst að þeir gera það ekki, þá segir hann bara, „ekki hugmynd.“ Þannig maður spyr sig hvað er tryggt hjá manni þegar að maður er að fljúga með þessu blessaða flugfélagi? Hvaða rétt hefur maður gegn því þegar að Flugleiðir tapa því sem að maður hefur þurft að vinna sér inn fyrir sem að þeir tapa fyrir manni?

Guðbjörn Óskarsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn