Sunnudagur 9. maí 2004 kl. 21:36
Ekkert markvert í Keflavík eða Njarðvík að mati bæjarstjórans

Í ferðablaðinu „Ævintýralandið Ísland“, sem fylgdi Morgunblaðinu sl. föstudag þ. 7. maí, er Árni Sigfússon beðinn um að lýsa hvað hann myndi sýna gestum sem vildu sækja Reykjanes heim. Það kemur á óvart að skv. lýsingu bæjarstjórans telur hann engan stað í Keflavík eða Njarðvík þess verðan fyrir gesti sína að skoða. Hann segist mundi keyra ,,í gegnum Keflavík” eftir að hafa stoppað við Stapann og fara beint út í Garð. Eftir heimsókn í Sandgerði og út á Stafnes, og síðan akstur í gegnum Hafnir út á Reykjanes, yrði stefnan sett á Bláa Lónið með viðkomu á brúnni milli heimsálfa og skoðun á Gunnuhver.

Þetta þykja mér kaldar kveðjur til þeirra fjölmörgu aðila sem starfa við ferðaþjónustu í Keflavík og Njarðvík. Bæjastjórinn myndi sem sagt ekki sýna gestunum fallegu steinkirkjuna í Innri Njarðvík, ekki sýna þeim Stekkjarkot, ekki ganga um útivistarsvæðið og heimsækja álftirnar á Fitjum, ekki stoppa við Duus húsin, ekki sýna gestunum Listasafn Reykjanesbæjar eða bátasafn Gríms Karlssonar og ekki heimsækja vinnustofur einhverra af okkar frábæru listamönnum. Bæjarstjórinn myndi heldur ekki ganga um uppgerða hluta gamla bæjarins í Keflavík við Vallargötu og Íshússtíg, bjóða gestunum í kaffi á annað hvort hótelið eða einhvern af þeim veitingastöðum sem hér eru og ekki ganga með þá út á Bergið. Hann mundi ,,keyra í gegnum Keflavík”.
Þetta þykja mér skrýtnar áherslur hjá bæjarstjóranum og vona að aðrir bæjarbúar, sem hyggja á móttöku vina og vandamanna í sumar, hugsi öðruvísi og leggi áherslu á að sýna allt það sem sveitarfélagið okkar hefur upp á að bjóða. Það er vel þess virði.
Kær kveðja,
Kjartan Már Kjartansson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins og áhugamaður um uppbyggingu ferðaþjónustu í Reykjanesbæ.