Einar Njálsson frá Grindavík til Selfoss
Meirihluti bæjarstjórnar í Árborg hefur náð samkomulagi um að ráða Einar Njálsson í starf bæjarstjóra. Verður ráðning hans tekin fyrir með formlegum hætti í bæjarráði 4. júlí. Einar var bæjarstjóri í Grindavík á síðasta kjörtímabili og þar áður bæjarstjóri á Húsavík.Suðurnesjamaður var meðal 17 umsækjenda um starf bæjarstjóra, en öllum umsóknum var hafnað. Það var Magnús Hlynur Hreiðarsson úr Vogum, en betur þekktur sem fréttaritari Sjónvarpsins á Selfossi.