Einar Falur með fyrirlestur í Virkjun
Næstkomandi þriðjudag, 30.nóvember kl.14:00, ætlar einn af okkar færustu ljósmyndurum, hann Einar Falur Ingólfsson frá Keflavík, að vera með fyrirlestur um ljósmyndun hér í Virkjun. Frábært tækifæri fyrir áhugamenn og lengra komna til að hlusta á meistarann.
Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, blaðamaður og fl. er með próf í bókmenntafræði frá HÍ og MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Hann hefur unnið með ljósmyndurunum Mary Ellen Mark og Patrick Demarchelier, New York City, 1992 - 1995. Hann á ljósmyndir í fjölda bóka og tímarita, innlendum sem erlendum. Hann hefur haldið jósmyndasýningar í Reykjavík, Keflavík, New York, Stokkhólmi og Krefeld og hefur hlotið fern verðlaun á sýningum Blaðaljósmyndarafélags Íslands.
Fyrirlesturinn er ókeypis og allir eru velkomnir. Vonumst til að sjá sem flesta.
Virkjun mannauðs á Reykjanesi,
Flugvallarbraut 740. Ásbrú.
Sími: 426-5388.