HSS
HSS

Aðsent

Einar Falur með fyrirlestur á morgun
Mánudagur 29. nóvember 2010 kl. 14:33

Einar Falur með fyrirlestur á morgun

Næstkomandi þriðjudag, 30. nóvember kl. 14:00, ætlar einn af okkar færustu ljósmyndurum, hann Einar Falur Ingólfsson frá Keflavík, að vera með fyrirlestur um ljósmyndun hér í Virkjun. Frábært tækifæri fyrir áhugamenn og lengra komna til að hlusta á meistarann.

Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, blaðamaður og fl. er með próf í bókmenntafræði frá HÍ og MFA-gráðu í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York. Hann hefur unnið með ljósmyndurunum Mary Ellen Mark og Patrick Demarchelier, New York City, 1992 - 1995. Hann á ljósmyndir í fjölda bóka og tímarita, innlendum sem erlendum. Hann hefur haldið jósmyndasýningar í Reykjavík, Keflavík, New York, Stokkhólmi og Krefeld og hefur hlotið fern verðlaun á sýningum Blaðaljósmyndarafélags Íslands.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fyrirlesturinn er ókeypis og allir eru velkomnir. Vonumst til að sjá sem flesta.


Virkjun mannauðs á Reykjanesi,
Flugvallarbraut 740, Ásbrú.
Sími: 426-5388