Ég fer í fríið
Það kom að því loksins. Ég bókaði sumarfríið. Svakalega erfitt að komast að einhverri niðurstöðu en þegar hún lá fyrir, var ekki aftur snúið. Ég ætla að sópa stéttina í sumarhúsinu á Spáni. Í maí. Stressið að bóka ferðina var svakalegt. Sveittur í lófunum við tilhugsunina. Alls konar upplýsingar sem maður þarf að gefa upp. Það munaði rúmum þrjátíu þremur prósentum á flugmiðanum á milli flugfélaga. Hvurslags er þetta eiginlega, þrír rassar í sæti til Spáníó. Ég valdi það ódýrasta fyrir hópinn enda þýddi það einn frían rass. Kvöldflug út og næturflug tilbaka. Slétt sama. Flott að fljúga að kveldi eða nóttu. Svefn. Eða gin og tónik. Annað hvort.
Nú þarf ég að huga að skyrtunum. Stutterma. Þær bíða mín frá því síðast. Beint í þvottavélina. Strauja. Og stuttbuxurnar. Passa. Ennþá. Rauðar. Ég skoppa eins og smákrakki við tilhugsunina að láta mig fljóta í sjónum sægræna. Innan um heimamenn, sem koma með nesti að heiman. Innan um Breta með bjór af barnum. Strandbarnum. „Where‘re you from?“ Elska þetta allt. Ströndin slétt, sjórinn heitur, barinn svalur, hvíldin sæl! Ætla að njóta þess að liggja með tærnar upp í loft og láta svalan sunnan blæ leika um mig á meðan ég hugsa heim til ykkar í vinnunni. Á meðan mun sangrían söngla hérna megin. Af og til.
Stressaður að koma öllu haganlega fyrir í vinnunni. Geta þau án mín verið allan þennan tíma? Blessunarlega fullt af hæfu fólki á mínum vinnustað. Andskotinn. Hringja í framkvæmdastjórann og fá leyfi. Krosslegg fingur að hún taki vel í þetta þó fyrirvarinn sé skammur. Nota gamalt og ómótstæðilegt ráð. Er að fara með tengdó í fríið, hún er alveg hætt að komast eitthvað án mín. Treystir eiginlega alveg á okkur! Já, farðu bara, er þetta ekki bara vika eða tvær? Jú, eiginlega, en sú gamla segist þurfa þrjár. Að minnsta kosti. Ég læt hana stjórna því. Er það ekki? Ég verð í sambandi fljótlega.
Pantaði þriggja vikna ferð. Þarf tíma til að vökva sítrónutréð í garðinum. Verð djöfulli flottur á stéttinni nýsópuðu, með Arnald í annari hendi og Kaffitár í hinni. Á meðan geta mæðgurnar skroppið á markaðinn á nítíu og eitt módelinu af Renault. Krúttlegt. Tek vel á móti þeim. Grilla eitthvað svakalega gott. Legg mig allan fram. Með sól í hjarta.