Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Efnt verði til almennrar atkvæðagreiðslu um álver
Föstudagur 16. febrúar 2007 kl. 10:46

Efnt verði til almennrar atkvæðagreiðslu um álver

"Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum krefjast þess að íbúum á Suðurnesjum verði gert kleift að kjósa um fyrirhugað álver í Helguvík. Álver hefur gríðarlega mikil áhrif á samfélagið og umhverfið á Suðurnesjum og þess vegna verður vilji almennings að koma fram með skýrum hætti. Uj-Suð skorar því á sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum að efna til almennrar atkvæðagreiðslu um þessi áform áður en til framkvæmda kemur."

Þessi ályktum var kynnt á fjölmennum oppnum fundi sem Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum héldu á Ránni í Reykjanesbæ á miðvikudagskvöld.

Þetta er fyrsti íbúafundur sem er haldinn í Reykjanesbæ þar sem bæði fulltrúar álvers og umhverfis kynna sjónarmið sín. Uj-Suð vonast til þess að fundurinn verði til þess að ýta enn frekar undir oppna umræðu á Suðurnesjum um fyrirhugað álver í Helguvík, segir í tilkynningu frá Ungum jafnaðarmönnum á Suðurnesjum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024