Flugger
Flugger

Aðsent

Eflum þjónustu dagmæðra  X - U
Mánudagur 9. maí 2022 kl. 11:00

Eflum þjónustu dagmæðra X - U

Dagvistunarúrræði hafa verið í brennidepli í Reykjanesbæ undanfarin ár. Áform hafa verið uppi um ungbarnaleiksskóla í lengri tíma en lítið að frétta í þeim málum.  Bærinn hefur átt í fullu fangi við að taka á móti ört stækkandi hópi barna. Reykjanesbær er í örum vexti og þess má vænta að því fylgi vaxtarverkir. Þegar ástandið er orðið þannig að nýbakaðir foreldrar eru orðnir tekjulitlir eftir fæðingarorlof þar sem það eru engin önnur vistunarúrræði fyrir gullmolana en að pabbi eða mamma séu heima þá þarf að skoða ofan í kjölin hvernig við hugsum okkur framtíðina í leikskólamálum.

Svo áratugum skiptir hafa dagforeldrar tekið á móti litlum krílum og veitt þeim dagheimili á meðan foreldrar sækja vinnu eða skóla. Þetta úrræði er nauðsynlegur hlekkur fyrir börn og foreldra og einnig fyrir atvinnurekendur sem gera ráð fyrir að starfskraftur snúi til fyrri starfa að fæðingarorlofi loknu. Fyrir nokkrum árum fækkaði mjög í hópi dagforeldra og var það þungt högg fyrir nýbakaða foreldra að geta ekki treyst á að koma barni sínu að.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Umbót með skýra framtíðasýn fyrir vistun yngstu barnanna

Ef við ætlum að byggja upp fjölskylduvænt bæjarfélag þá er nauðsynlegt að við bjóðum upp á vistunarúrræði fyrir börn sem hægt er að treysta á. Það er mikilvægt að styrkja þá þjónustu sem þegar er í boði hjá dagforeldrum og sjá til þess að foreldrar hafi aðgang að þjónustu þeirra. Það þarf að stuðla að uppbyggingu og endurnýjun í starfsstéttinni.

Ég hef fylgst með starfssemi dagforeldris í tugi ára, móðir mín hefur unnið sem dagmóðir síðastliðna þrjá áratugi. Á þessum tíma hafa forsvarsmenn starfsstéttarinnar margoft tekist á við bæjaryfirvöld vegna þeirra framlags til vistunar á móti foreldrum. Í hvert sinn hefur verið kannað hvernig sambærileg bæjarfélög hafa hagað þeim málum og alltaf hefur Reykjanesbær verið lægri. Vistunarúrræði sem þessi eru bæjarfélaginu mun ódýrari en leiksskólaplássið á hvert barn. Þrátt fyrir það er kostnaður foreldra mun hærri. Þarna er hægt að gera betur fyrir ekki svo margar krónur. Það þarf að minnka munin á verði leikskólavistunar og vistunar hjá dagforeldri.

Umbót ætlar að hækka niðurgreiðslur til dagforeldra svo auka megi þjónustuna

Það þarf að auka stuðning við rekstur dagforeldra. Fæstir dagforeldrar ná að greiða sér lágmarkslaun af þeim tekjum sem koma inn. Gjaldið felur í sér aðstöðu, húsbúnað og fæði svo eitthvað sé nefnt, að undanskyldum leikföngum. Það ætti því að vera lágmarkskrafa okkar að dagforeldri geti greitt sér laun sem sæma starfsstéttinni. Til þess að það geti gerst þarf gjaldið að hækka en á móti má það ekki koma niður á foreldrum.

Við í Umbót viljum að farið verði í kjölinn á þessu mikilvæga vistunarúrræði og bærinn okkar sýni fordæmi með því að auka verulega fjárframlög til dagvistunarurræðis dagmæðra. Auka þarf stuðning við starfsstéttina með fjölbreyttum hætti. Eins og staðan er í dag er starfsemi þeirra mikilvægasti hlekkurinn í því að foreldrar ungbarna geti snúið til fyrri starfa eða náms að fæðingarorlofi loknu.

Kæri kjósandi. Vertu í liði með okkur að efla þjónustu dagmæðra.

Þinn stuðningur skiptir máli. X-U.

Harpa Björg Sævarsdóttir, 14. sæti Umbótar