Bygg
Bygg

Aðsent

Eflum foreldrasamstarf
Fimmtudagur 11. september 2003 kl. 12:18

Eflum foreldrasamstarf

Skipulagning Ljósanætur var til fyrirmyndar í alla staði og eiga forráðamenn hjá Reykjanesbæ þakkir skyldar fyrir frábæran menningar og listviðburð. Það var almannarómur að sérstaklega vel hafi tekist til með dagskráratriði og bærinn skartaði sínu fegursta á góðri fjölskylduhátíð.

Getur verið að foreldrar hafi sofnað á verðinum?
Einn var þó ljóður á sem vert er að nefna til að upplýsa þá foreldra sem ekki vita að unglingarnir okkar margir hverjir voru eftirlitslausir niðri í bæ, bæði föstudags og laugardagskvöld, langt fram á nótt. Þeir sem áttu leið um Hafnargötuna og miðbæinn um og eftir miðnætti þessi kvöld geta borið vitni um það. Það sem við blasti er vart með orðum lýst. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fjölda ungmenna í miðbænum vegna brota á útivistarákvæðum og áfengisneyslu eins og segir í dagbók lögreglu. Einnig segir þar að talsvert hafi verið tekið af áfengi og landa.
Unglingar voru í hópum eða ráfandi um ofurölvi. Samkvæmt heimildum frá útideild var viðbúnaður lögreglu og annarra aðila s.s. björgunarsveitarinnar að öllu leiti góður en þeir telja að skort hafi á að foreldrar sýndu ábyrgð þetta kvöld.
Auðvitað er meirihluti unglinga yfirleitt til fyrirmyndar og varast ber að gera úlfalda úr mýflugu eða dæma allan hópinn en í þessu tilfelli var um fjölda ungmenna að ræða eins og segir í dagbók lögreglu.

GAMAN SAMAN Á LJÓSANÓTT eða var þínu barni ekið heim af lögreglu?
Þeim áróðri hefur verið haldið á lofti að ekki skuli kenna foreldrum um heldur kenna þeim
og leiðbeina í vandasömu uppeldishlutverki þeirra og við beinum því þeim tilmælum til foreldra að vera vel á verði og halda útivistartíma ekki síst á Ljósanótt. Við tölum oft um forvarnir en við þurfum að sýna viljann í verki.

Útideildin, lögreglan og Fjölskyldu og félagsþjónusta Reykjanesbæjar voru með ábendingu til foreldra,hálfsíðu auglýsingu í Suðurfréttum, undir yfirskriftinni “Gaman saman á Ljósanótt”. Þannig gerðu þessir aðilar sínar ráðstafanir til að koma skilaboðum til foreldra en það virðist ekki hafa vakið nægilega athygli. Einhverra hluta vegna er eins og við höfum sofnað á verðinum. Hingað til höfum við verið í viðbragðsstöðu um verslunarmannahelgina, gamlárskvöld og dagana þegar samræmdum prófum lýkur en þarna vorum við grandalaus. Ekki bætti úr skák að símakerfið brást og margir ( sem höfðu orðið viðskila við sína unglinga) gátu ekki náð í börn sín í gegnum nýjasta uppeldismiðilinn eða farsímann.

TÖKUM SIÐFERÐI OKKAR TIL ENDURSKOÐUNAR
Við þurfum að vera í stakk búin að rýna til gagns í mannlífið og lagfæra það sem betur má fara í
siðferði okkar ekki síst þegar reynir á okkur. Á Ljósanótt bjóðum við gestum í bæinn og lýsum hann upp en það er álit sumra að frjálsræði fullorðinna með áfengi hafi verið töluvert á almannafæri á laugardagskvöldinu. Við þurfum að halda lög og virða útivistarreglur líka þegar það er fjör og gaman.
Foreldrar gleymum því ekki að við erum fyrirmyndir barna okkar og allir fullorðnir eru fyrirmyndir unga fólksins sem er á viðkvæmu mótunarskeiði og gerir það sem fyrir þeim er haft. Sá jákvæði andi sem ríkir á Ljósanóttinni okkar þarf að ná inn í alla króka og kima þannig að við getum átt góðar minningar um þennan einstaka atburð og getum tekið undir með Hljómum þegar þeir syngja um
gamla bæinn sinn. Vel upplýstir foreldrar eru góð forvörn og við þurfum að skoða málið vel þegar okkur er bent á það sem betur má fara. Eflum foreldrasamstarf.

FFGÍR/hmg.



VF-ljósmynd/HBB: Mannhaf á Hafnargötunni á Ljósanótt.
Bílakjarninn
Bílakjarninn