Bygg
Bygg

Aðsent

Mánudagur 13. maí 2002 kl. 15:09

Efling á innra starfi

Á undan förnum árum hefur mikið verið um verklegar framkvæmdir í okkar ágæta bæjarfélagi undir forystu okkar sjálfstæðismanna. Stórir áfangar eru að baki og nefni ég þar sérstaklega einsetningu grunnskólans en þar var myndarlega að verki staðið. Aðstaða í skólunum okkar er til fyrirmyndar og vel búið að kennurum og nemendum. Næstu skref í skólamálum eru að efla enn frekar það góð starf sem unnið er innan veggja skólanna og samræma það listastarfi, tómstundum og íþróttum.Heilsdagsskóli
Heilsdagsskóli hefur verið mikið í umræðunni enda er um að ræða fyrirbæri sem kæmi sér afar vel fyrir marga aðila. Að vinnudegi loknum væru börnin búin með sitt prógram og allir komnir heim á svipuðum tíma. Mikil áhersla verður lögð á að skapa börnum góða þjónustu þegar hefðbundnum skóladegi líkur, með samþættum tilboðum í listastarfi, tómstundum, íþróttum og aðstoð við heimanám. Með þessum hætti er hægt að renna styrkari stoðum undir það mikilvæga starf sem íþróttafélögin og hin frjálsu félagasamtök vinna fyrir samfélagið okkar.

Stuðningur við íþróttastarfið
Það verður seint metið að verðleikum það góða starf sem unnið er innan íþróttahreyfingarinnar. Starf sjálfboðaliðans fer þar í fylkingarbrjósti og það eru sjálfboðaliðarnir sem eru íþróttafélögin, án þeirra væri lítið að gerast. Mörg félög hafa verið að ganga í gegnum erfið tímabil þar sem hlutirnir hafa í sumum tilfellum verið á mörkunum að buga sjálfboðaliðann. Á þessu hafa menn verið að taka og einnig þarf að búa þannig um hnútana að þetta komi ekki fyrir aftur. Ég hef undanfarin tvö ár verið formaður Tómstunda- og íþróttaráðs og tekið þátt í því að gera samninga við mörg íþróttafélög og frjáls félagasamtök sem hafa komið báðum aðilum til góða.

Ágætu bæjarbúar nú styttist til kosninga og styttist í að kosið verður í það lið sem kemur til með að spila næstu fjögur árin fyrir Reykjanesbæ. Liðið sem nú er að klára tímabilið hefur leikið ágætlega undanfarin fjögur ár og þar hafa sjálfstæðismenn verið í lykilhlutverkum. Tryggjum að svo verði áfram, tryggjum að orð verði færð í efndir. X-D


Gunnar Oddsson
skipar 11. sæti á D-lista Sjálfstæðisflokksins
Bílakjarninn
Bílakjarninn