Draumafæðing: Næsta námskeið hefst 26. september

Draumafæðing býður uppá ítarlegan og persónulegan undirbúning fyrir fæðingu barnsins þíns.
Þetta eru námskeið fyrir allar þær konur og menn sem vilja fá öðruvísi og dýpri nálgun á meðgöngu, fæðinguna og foreldrahlutverkið. Hér getur þú dekrað við þig, litið inná við, fengið mikla fræðslu oga leiðsögn. Ég kenni konum ekki að fæða samkvæmt einhverju prógrammi eða tækni, heldur treysti ég því að konan viti nú þegar hvernig hún á að fæða og að barnið sé meðvitaður þátttakandi í ferlinu. Leitast er við að konan komist í kynni við þessar hliðar í sjálfri sér svo að hún sé fær um að taka upplýstar og meðvitaðar ákvarðanir um þetta einstaka ferli sem mun móta hana sem móður og konu alla tíð, svo og heilsu barnsins.
Í framhaldi af námskeiðinu eiga konur kost á því að fá fylgd frá fæðingacoach í fæðinguna.
Fæðingacoach / Doulur vera æ vinsælli kostir í nágrannalöndum okkar til að tryggja fjölskyldunni samfellda þjónustu og flglegan stuðning fyrir, í og eftirr fæðingu.
Rannsóknir sýna að viðvera faglegs stuðningsaðila, sem móðirin þekkir og treystir, dragi mikið úr inngripum og auki almennt ánægju með fæðingarferlið.
Nánari upplýsingar og skráning fást í gegnum heimasíðuna www.draumafaeding.net , í síma 421-5686 / 695-5685 eða í gegnum email, [email protected]