Dómsmálaráðherra gagnrýnir bandaríkjamenn
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir Bandaríkjamenn nálgast varnarsamtarfið við Íslendinga á þröngum tæknilegum forsendum. Hann segir þá halda að þeir geti gengið fram á einhliða forsendum.Á heimasíðu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra minnist hann þess að Helmut Smith kanslari Þýskalands hafi á tímum Kalda stríðsins tekið á sig mikil pólitísk óþægindi heima fyrir í því skyni að knýja fram samþykki fyrir því að Bandaríkjamenn hefðu nifteindasprengju í vopnabúri sínu í V-Þýskalandi. Björn segist hafa orðið var við það á fundum sem hann sótti á alþjóðavettvangi um öryggismál á þessum árum hve Helmut Smith var misboðið vegna framgöngu Bandaríkjaforseta í málinu og segir kanslarann og samstarfsmenn hafa oft haft á orði að varasamt gæti verið að treysta Bandaríkjastjórn þegar teknar væru mikilvægar hernaðarlegar ákvarðanir sem menn teldu byggjast á gagnkvæmu trausti. Bandaríkjamenn litu þannig á að þeir gætu gengið fram á einhliða forsendum ef þeim sýndist svo.
Dómsmálaráðherra segir að Íslendingar hafi kynnst svipuðu viðhorfi á síðustu tíu árum þegar rætt hefur um fyrirkomulag varna Íslands við fulltrúa Bandaríkjastjórnar. Áhersla Íslendinga á pólitískt samráð og gagnkvæmni virðist koma Bandaríkjamönnum í opna skjöldu, segir Björn, þó að þeir hafi hingað til áttað sig á nauðsyn slíkra vinnubragða að lokum.
Þá segir Björn að Bandaríkjastjórn nálgist varnarsamstarfið við Íslendinga á þröngum tæknilegum forsendum og láti tæknimenn innan Pentagon og einkum innan flughersins ráða ferðinni. Hann segir tæknileg viðhorf ekki eiga að ráða ferðinni um úrlausn pólitískra viðfangfsefna. Hann segist vona að með bréfinu frá Bush sé kominn skýr pólitískur þráður til Hvíta hússins í þessum viðræðum og spurning hvernig hægt verði að nýta hann til að sætta ólík sjónarmið í málinu.