Bygg
Bygg

Aðsent

Deilt um samkomulag í bæjarstjórn
Miðvikudagur 22. september 2004 kl. 15:53

Deilt um samkomulag í bæjarstjórn

Nokkuð hart var deilt um samning Reykjanesbæjar við Víkurfréttir um kaup á plássi undir umfjöllun um skólamál í blaðinu á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. Lagði Árni Sigfússon bæjarstjóri fram svör við spurningum minnihluta bæjarstjórnar á fundinum. Í svari bæjarstjóra kom fram að samstarfið hafi verið kynnt í starfsáætlun Reykjanesbæjar og að greint hafi verið frá því á íbúafundum bæjarstjóra sl. vor. Hvað Hann sagði samkomulagið við Víkurfréttir hafa gengið mjög vel og blaðið hefði staðið sig mjög vel í umfjöllun um skólamál. Hann nefndi að umfjöllun Víkurfrétta hefði aukist um þessi málefni, langt umfram samkomulagið. Minnihluti bæjarstjórnar lagði fram bókun um málið þar sem bæjarstjóri er harðlega gagnrýndur fyrir svörin og sakaður um að gera lítið úr fyrirspyrjendum.

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.

Bílakjarninn
Bílakjarninn