Cynthia Dawn Maríudóttir - minning
Elsku góða, fallega stelpan mín! Þetta er eitthvað sem ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að gera. Ég sit hér og skrifa um þig minningargrein! Það bara passar ekki, ég get engan veginn misst þig hjartað mitt sem sló og draumurinn minn sem rættist, það ert þú! Þú ert farin, það þýðir ekki að hringja, senda skilaboð eða neitt. Ævi þinni hér er lokið aðeins 39 ára gömul, lífsglöð, vönduð stúlka. Sársaukinn er ólýsanlegur og nístir inn í merg og bein. Þú gekkst í gegnum hluti sem ekkert barn hefði átt að þola, það setti mark sitt á ævi þína og fáir hefðu spjarað síg betur. þú fórst út í lífið og samt ákveðin í að ná markmiðum þínum. Þú fórst í nám í háskólanum í Las Vegas, fyrst í sálfræði, síðan í bókmenntafræði. Eitt er á hreinu, að þú varst sjálfmenntuð í því fagi og stóðst þig vel í hvoru tveggja. Öll fallegu ljóðin þín sem þú hefðir mátt flíka meira, þú hefðir getað gefið út nokkrar ljóðabækur, 39 ára. Önnur skrif þín voru mjög djúp, af svo ungri konu að vera. Ung manneskja með erfiða lífsreynslu að baki, þú varst snillingur! Þú varst alltof hógvær, birtir sumt af þessu á Fb þínu en alltof lítið.
Þegar mamma var í Las Vegas vildirðu hafa mig með þér í skólanum. Það var alveg magnað þegar þú fékkst leyfi til að hafa mig með í tímum... mín hugrökk! Það var mjög skemmtilegt, svo vildirðu hafa mig með þér á bókasafni skólans, þar lásum við saman! Góðu stundirnar og símtölin voru ómetanleg, Þú elskaðir Ísland, það var þitt land, fallegasta og besta land í heimi sagðirðu! Náttúran, snjórinn, rigningin, rokið, tungumálið, maturinn og ekki síst íslensk klassísk tónlist í eldri kantinum Við sátum saman og horfðum á myndbönd með íslenskum lögum og náttúru. Þú elskaðir íslenskan mat, Við töluðum saman fram á nætur, jólin voru yndisleg! Við vorum ekki bara mæðgur, heldur líka bestu vinkonur sem ekki er sjálfgefið! þú varst vinamörg, og eins og einn vinur þinn sagði... ég hef aldrei kynnst svona fallegri, skemmtilegri, hlæjandi, uppátektarsamri stelpu!
Við vorum búnar að skemmta okkur mikið saman bæði í Las Vegas og heima á Íslandi, einnig grétum við saman sem var óhjákvæmilegt. Þú áttir stóra drauma eins og mamma. Það var auðvelt að kynnast þér. Þú varst vinamörg, opin og svo falleg að það vakti gríðarlega athygli hvert sem þú fórst. Mamma var svo stolt af þér og hjartalagi þínu til þeirra sem máttu sín lítils. Við áttum mikið sameiginlegt, vorum líkar í mörgu. Við fórum saman í ákveðin hverfi í Las Vegas og hjálpuðum heimilislausum. Það var dásamlegt. Þú hafðir hjarta fyrir lítilmagnanum, sem fæstir hafa. Þú slasaðist fyrir nokkrum árum en varst mjög dugleg að drífa þig upp úr því og aftur var mamma stolt! Þessi tími, undafarið án þín hefur verið svakalega erfiður, ekkert foreldri á að þurfa að upplifa þetta. Ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að fara að án þín? Það er aðeins eitt sem færir mér örlitla huggun, mér var sýnt hvar þú ert, ... á himninum með með ömmu og afa.
Lifið er tómlegt og söknuðurinn mikill. Við sjáumst hjartað mitt, ég elska þig út í hið óendanlega. Knús!
Þín Mamma.