Burt með óhugnaðinn af Nikkelsvæðinu
Loksins virðast ráðamenn vera að vakna til aðgerða um úrbætur á Nikkelsvæðinu, Í VF þann 18. maí sl. birtast tvær greinar varðandi þetta vandræðamál, sem löngu er orðið öllum viðkomandi til stór skammar. Bergur Sigurðsson mengunarvarnafulltrúi HS tuðar enn um möguleg eiturefni og hugsanlega hættu af þeim. Bergur segir m.a.: Umræða um hvort þörf sé frekari rannsókna þarf að fara fram á faglegum grunni. „Eru Iðntæknistofnun og Háskóli Íslands ekki nógu faglegar.“ ? Skúli Þ Skúlason vitnar til mikilla rannsókna frá 1998 þar sem niðurstaðan varð sú að mengun á svæðinu væri viðráðanleg. Það kemur heim og saman við allar rannsóknir, sem búið er að vera að gera allar götur frá 1972.Skúli segir frá því að bæjarstjórn hafi nýlega borist bréf frá utanríkisráðuneytinu, þar sem boðið er upp á leigusamning um svæðið. Hálf þokukennt verður það í hugum margra þegar talað er um bréf frá ráðuneyti. Við hér um slóðir höfum slæma reynslu af slíkum bréfum, sérstaklega minnist ég bréfa, sem höfðu okkur að fíflum, frá þessu sama ráðuneyti varðandi Helguvíkina og annars frá heilbrigðisráðuneytinu varðandi D-álmuna, bæði send í tíð ráðherra sem litlar mætur höfðu á hagsmunamálum okkar hér á Suðurnesjum. Vonandi hefir einhver, sem mark er á takandi skrifað undir þetta bréf og vissulega vekur það vonir þegar hið háa ráðuneyti lætur svo lítið að skrifa vinum sínum hér syðra bréf.Ekki fæ ég annað skilið en að Skúli telji að boðið sé það gott, að ekki standi á öðru en að ráðamenn okkar gefi sér tíma til þess að renna í bæinn og ganga frá málinu.Ekki er nú við því að búast að allir samþykki það og strax í næsta blaði VF þann 25. maí, gerir Jóhann Geirdal nokkrar athugasemdir við þetta kostaboð. Þær eru mest um að hver eigi að borga hreinsun svæðisins, sem honum reiknast til að muni kosta Reykjanesbæ kr. 62 milljónir eða um þriðjung af því sem Keflavík og Njarðvík höfðu í afgang af vatnsveitu peningunum sem Jón Baldvin gekk svo vasklega fram í að útvega. En nú höfum við ekki Jón Baldvin til þess að ganga í málin fyrir okkur, heldur ekki Emil Jónsson, sem sá til að Keflavíkbæ var afhent landið á Berginu á silfurfati.Nei, við sitjum uppi með Halldór Ásgrímsson og vikapilta hans í utanríkisráðuneytinu. Í fljótu bragði virðist mér að þeir ætli að láta ráðuneytið hirða álíka lóðarleigu og Landeigendur Njarðvíkur innheimta af lóðum sínum.“ Aldrei hefi ég verið hrifinn af því og enn síður af þessum leiguskilmálum. Sjálfsagt er að miða við landið á Berginu og krefjast þess að Sölunefndin fjarlægi eigur sínar, tankadótið ofl. tafarlaust, ella láti bærinn gera það á hennar kosnað. Hún hefir það til sölu.Samningum í þá veru ætti að vera hægt að ná, ef loksins er vilji til þess að losa okkur við þennan óhugnað. Það var reyndar ætlunin með samningnum um höfnina í Helguvík, sem Benedikt Gröndal hratt af stað 1979 og undirritaðir voru 23. maí 1980 og ítrekað með samþykkt Alþingis með þingsályktun 21. mai 1981. Þessu verki verður að ljúka. Ólafur Björnsson.