Búið að marka stefnu og framtíðarsýn Reykjanesbæjar fram til 2006

Hver er tilgangurinn með stefnunni?
Tilgangur þessa plaggs er að leggja fram heildstæða framtíðarsýn, stefnu og meginverkefni sem fylgja þessari stefnu þannig að bæjarbúum og starfsmönnum bæjarins sé ljóst hvað þurfi að gera svo við náum að skapa þá mynd samkvæmt framtíðarsýninni.
Er stefnan að koma öllum þeim atriðum sem fram koma í plagginu í framkvæmd?
Að sjálfsögðu.
Eru verkefnin sem fram koma í plagginu byggðar á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar?
Við erum að fylgja eftir þeirri stefnu sem við teljum okkur hafa fengið stuðning bæjarbúa til að framkvæma. Að auki höfum við lagt áherslu á að afla upplýsinga frá nefndum og ráðum í gegnum forstöðumenn, hvað það er sem hefur þótt áhugavert að framfylgja og við höfum samþætt þessi atriði inn í stefnuna.
Er algengt að slík stefna sé lögð fram í sveitarstjórnum?
Nei. Það er algengara að þar sem eru samstarfsflokkar að þeir búi til einhverskonar málefnasamning sem stundum er nú allloðinn. Ég hef hvergi séð jafn ítarlega áætlun setta fram þar sem sýndir eru verkþættir undir hverjum framkvæmdalið og ábyrgðarþættir þannig að bæjarbúar og aðrir geti fylgst með og vitað nákvæmlega hvar mál standa og hver er með það.
Hvað fannst þér um viðbrögð minnihlutans?
Mér fannst mjög ánægjulegt að þau hefðu ekki athugasemdir við neina af þeim fjölmörgu tillögum sem var verið að samþykkja á fundinum. Það var mjög ánægjulegt.
Telurðu að bæjarbúar verði ánægðir með þessar tillögur?
Ég tel að bæjarbúar hljóti að fá staðfestingu á því að við hyggjumst færa orð í efndir, en það var einmitt kjörorð Sjálfstæðismanna fyrir síðustu kosningar. Ég tel að þessi framtíðarsýn sé óefað það sem bæjarbúar vilja sjá gerast hér í bænum.