Brynja Lind formaður FUF

Nýr formaður FUF er Brynja Lind Sævarsdóttir, varaformaður er Jón Halldór Eðvarðsson og meðstjórnendur þau Andri Freyr Stefánsson, Íris Edda Heimisdóttir og Vala Rún Björnsdóttir. Í varastjórn eru Þorsteinn Kristinsson, Hafdís Ásgeirsdóttir, Agnes Rut Árnadóttir, Arnar Magnússon og Einar Birgir Bjarkason.
Félag ungra framsóknarmanna er ætlað fólki á aldrinum 18-35 ára. Ný stjórn félagsins mun kynna starfsemi félagsins fyrir ungu fólki á næstu vikum.