Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Brotthvarf varnarliðsins - ný tækifæri
Sunnudagur 19. mars 2006 kl. 23:11

Brotthvarf varnarliðsins - ný tækifæri

-Ályktun stjórnar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ 18. mars 2006.

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ harmar að nú skuli koma til uppsagna starfsmanna bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli án þess að nokkuð hafi verið gert til að undirbúa starfslok þeirra.

Andvaraleysi sjálfstæðismanna
Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar bentu frambjóðendur Samfylkingarinnar á að eitt af mikilvægustu verkefnum kjörtímabilsins væri að undirbúa viðbrögð vegna verulegrar fækkunar í herliðinu á Keflavíkurflugvelli. Viðbrögð sjálfstæðismanna voru þau að þetta mætti ekki ræða enda lýsti oddviti þeirra Árni Sigfússon því yfir að hann ætlaði að sjá til þess að ekki yrði um verulega fækkun að ræða, þetta tal væri hins vegar sönnun þess að Samfylkingin í Reykjanesbæ ætlaði að reka herinn.

Nú þarf starfsfólk á Keflavíkurflugvelli að súpa seyðið af þessu andvaraleysi ráðamanna Sjálfstæðisflokksins. Það vita þó allir að sveitarstjórnarmenn hafa ekkert með það að gera hvort um samdrátt eða brottför verður að ræða hjá bandaríkjaher hér á landi. Það er hins vegar skylda sveitastjórnarmanna að standa vörð um hagsmuni íbúanna og í því efni hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ brugðist.

Það er hjákátlegt að sjá núverandi bæjarstjóra Árna Sigfússon koma fram í fjölmiðlum og gefa til kynna að bæjarstjórnin hafi verið að vinna í þessum málum. Hið rétta er að sjálfstæðismenn hafa komið í veg fyrir slíka vinnu.

Ekki hlustað á skynsemisrödd Samfylkingarinnar
Á vordögum 2003, þegar ljóst var að bandaríkjamenn vildu draga verulega úr starfsemi sinni, óskuðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum yrðu boðaðir til fundar ásamt fulltrúum frá forsætis- og utanríkisráðuneytum hið fyrsta. Sjálfstæðismenn breyttu tillögunni í að halda skuli fund þegar aðstæður leyfa. Þær aðstæður hafa ekki enn komið upp að þeirra mati.

Þegar að bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ hafa reynt að ná upp vitrænni umræðu um viðbrögð til varnar því fólki sem vinnur á Keflavíkurflugvelli þá hafa sjálfstæðismenn í meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar ekki haft hug á slíkum umræðum því þar með gætu þeir verið að auðvelda hernum að fara.

Á þennan hátt hafa sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ brugðist því fólki sem starfar á Keflavíkurflugvelli.

Nú þegar þeir standa loks frammi fyrir því að fólk missir atvinnu sína innan skamms, þykjast sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hafa verið að vinna í þessum málum. Betra er nú en aldrei og mikilvægt er að allir sameinist um að verja hagsmuni starfsfólks Keflavíkurflugvallar og þeirrar byggðar sem óneitanlega hefur þróast með hliðsjón af því að hér hefur verið herstöð.

Viðræður um viðskilnað
-Samfylkingin leggur áherslu á að nú þegar verði teknar upp viðræður við Bandaríkjamenn um viðskilnað þeirra.

Það þarf að semja um viðskilnað við fólkið.
Starfsfólki á Keflavíkurflugvelli, sem hefur unnið nánast alla sína starfsæfi á sérhæfðum vinnustað og á ekki auðvelt með að ganga í önnur og ólík störf, ber að tryggja starfslokasamninga, endurmenntun á launum eða auðvelda þeim lendinguna á annan hátt.

Það þarf að semja um viðskilnað við mannvirkin
Einhver mannvirki er hægt að yfirtaka og nota áfram í svipaðri mynd, önnur er hægt að nota undir aðra starfsemi og þannig nýta við uppbyggingu á nýrri framtíð en sum eru ekki nýtanleg lengur. Gera skal kröfu um að Bandaríkjamenn gangi frá eftir sig, að ónýt mannviki verði fjarlægð og gengið verði frá þeim sárum í náttúrunni sem þau hafa valdið.

Það þarf að semja um viðskilnað við landið
Víða er mengun að finna í jörðu, olía og önnur efni, sprengjur og skothylki, girðingar og fleira sem þarf að fjarlægja. Tryggja þarf að samningar um brottför hersins feli í sér að landinu sé skilað í viðunandi ástandi.

Þá er mikilvægt að tekið sé tillit til þess, að við brotthvarf varnarliðsins verður til umframgeta (offramboð) á þjónustu vegna þess að hermenn og aðrir sem tilheyra varnarliðinu hafa nýtt sér margvíslega þjónustu utan vallarsvæðisins. Þess vegna þarf að skapa möguleika á að „nýtt" fólk setjist að, jafnvel tímabundið, í þeirri byggð sem nú er á Keflavíkurflugvelli. Mikilvægt er einnig að þess sé gætt að íbúðir og önnur mannvirki sem þarna eru í miklum mæli fari ekki inn á almennan markað, því það gæti riðið byggingariðnaðinum á Suðurnesjum að fullu og hefði einnig veruleg áhrif á fasteignaverð á svæðinu.

Sem dæmi um starfsemi sem hentað getur vel á þessu svæði má nefna háskólaþorp, þannig væri hægt að nýta íbúðarhúsnæðið sem vistir, mötuneyti, íþróttahús o.s.frv. Þetta gæti t.d. verið útibú frá þeim háskólum sem starfa hér á landi og e.t.v. í samstarfi við erlenda háskóla.

Óþrjótandi möguleikar
Möguleikarnir eru óþrjótandi. Það er því mikilvægt að menn sameinist nú um samninga um viðskilnaðinn svo hægt sé að hefja uppbygginguna sem fyrst.

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ skorar því á alla sem koma að þessu máli að taka nú höndum saman í þeim tilgangi að mæta þeim tímabundnu erfiðleikum sem brottför hersins hefur í för með sér, nægur tími hefur nú þegar farið forgörðum.

Stjórn Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024