Börn hjálpa börnum
Söfnunin „Börn hjálpa börnum” stendur yfir nú í mars. Þessi söfnun er orðinn árviss liður í starfi ABC hjálparstarfs. Íslensk börn ganga þá í hús með merkta bauka og safna fé til styrktar munaðarlausum börnum. Söfnunin fer fram um allt land. Á næstu dögum munu skólabörn banka á dyrnar hjá þér með sérstakan bauk merktan ABC hjálparstarfi. Þessi börn leggja á sig heilmikla vinnu við að ganga í hús og treysti ég því að Suðurnesjamenn taki vel á móti börnunum og láti sinn hlut ekki eftir liggja.
Styrkja barnaheimili á Indlandi
Á síðasta ári söfnuðust um 3,6 miljónir króna yfir landið allt og var þeim fjármunum varið til heimila starfsins á Indlandi. Keypt var viðbótarland fyrir nýjan skóla á heimili Litlu Ljósanna á Indlandi auk ýmissa skólagagna. Einnig var sent fé til að reisa veggi og þak El Shaddai barnaheimilisins á Indlandi. Söfnunarfénu í ár er áætlað að verja til heimilis Litlu Ljósanna í Gannavaram á Indlandi en þar búa um 1500 munaðarlaus börn. Þessir dýrmætu einstaklingar hafa eignast nýja von vegna þess að til er fólk sem er tilbúið að gefa af fjármunum sinum og tíma til að sýna þeim kærleika í verki.
Gætum okkar minnstu bræðra
Á fyrstu síðum biblíunnar er borin fram spurningin fræga: „Á ég að gæta bróður míns?“ Þessari spurningu er afdráttarlaust svarað játandi það sem eftir er Biblíunnar. Þetta kemur skýrt fram í verkum og boðskap frelsarans t.d. í dæmisögunni um miskunnsama Samverjann og í gullnu reglunni og hann segir einnig: Allt sem þú gerir einum þessara minnstu bræðra minna gerir þú mér, þar af leiðir að allt sem þú ekki gerir þeim, það gerir þú mér ekki heldur. Þetta eru skýr skilaboð. Við vitum að gæðum heimsins er hróplega misskipt. Á hverjum degi heyja margir baráttu fyrir lífi sínu og eins og gefur að skilja verða börnin oft verst úti í þeirri baráttu. Þessi börn deyja úr örbirgð og sjúkdómum sem vissulega stafa af vanþekkingu en því miður einnig vegna mannlegrar grimmdar og eigingirni. Við getum ekki látið þetta sem vind um eyrun þjóta heldur eigum við að bera ábyrgð á náunga okkar hvar sem hann er og hver sem hann er. Það er þarna sem ABC hjálparstarf kemur til sögunnar.
Samkirkjulegt hjálparstarf
ABC hjálparstarf er íslenskt, samkirkjulegt hjálparstarf, stofnað árið 1988. Starfið er byggt á kristilegum grundvelli. Markmið þess er að veita hjálp sem kemur að varanlegu gagni með því að gefa fátækum börnum kost á skólagöngu og munaðarlausum og heimilislausum börnum kost á heimili. Í dag eru yfir 3000 börn í 6 löndum sem fá hjálp í formi skólagöngu, læknishjálpar, fæðis og klæða. Þar af eru um 1700 börn sem búa á heimilum ABC hjálparstarfs á Indlandi og í Kambódíu. ABC hjálparstarf er allt unnið í sjálfboðavinnu.
Hægt að taka að sér styrktarbarn
Hægt er að gerast stuðningsmaður ABC hjálparstarfs með því að styrkja ákveðin verkefni starfsins eða að taka að sér styrktarbarn. Þá er greidd ákveðin upphæð mánaðarlega sem nægir til að kosta fæði, lækniskostnað, skólagöngu eða fulla framfærslu barnsins. Styrktarforeldrar fá þá reglulega fréttir af barninu og möguleiki er á bréfaskriftum við barnið. Þessi tengsl verða oft mjög persónuleg og skemmtileg.
Suðurnesjamenn, stöndum saman og tökum vel á móti skólabörnunum þegar þau mæta með baukana sína, gerum hlut okkar á landsvísu veglegan í ár. Þegar niðurstöður úr söfnuninni liggja fyrir í vor mun ég gera grein fyrir þeim. Þeir sem hafa áhuga fyrir að gerast reglulegir stuðningsmenn ABC hjálparstarfs eða vilja taka að sér styrktarbarn geta haft samband við skrifstofu starfsins Sóltúni 3, R.vík sími 561 6117.
Bestu kveðjur.
María Magnúsdóttir fulltrúi ABC Á Suðurnesjum.