Bygg
Bygg

Aðsent

Sunnudagur 2. maí 2004 kl. 13:41

Borðaðu þig granna(n) á Púlsinum

Púlsinn ævintýrahús býður upp á fræðslukvöld með íslensku vigtarráðgjöfunum úr Garðabæ næstkomandi mánudagskvöld 10. maí klukkan 21. Það er Kristín V. Óladóttir, hjúkrunarfræðingur sem leiðir þennan hóp á Íslandi en hugmyndin kemur frá Danmörku. Hún náði af sér 28 kg. á aðeins 7 mánuðum með því að borða rétt samansett fæði. Ef þig langar til að breyta matarvenjum þínum og léttast um leið, þá er Kristín með ráð sem dugað hafa mjög vel. Hún mun kynna íslenska klúbbinn og fræða gesti um leið. Skráning er nauðsynleg á www.pulsinn.is eða  í S. 848 5366, þetta fræðslukvöld í Púlsinum og miðaverð er kr. 1.000.
Bílakjarninn
Bílakjarninn