Bókunarþjónustan stærsta markaðsetningartækifæri Suðurnesjamanna
Síðast liðið haust opnaði Markaðsstofa Suðurnesja fría bókunarþjónustu fyrir ferðamenn í Upplýsingamiðstöðinni í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þessi bókunarþjónusta er nýtt innlegg í því að markaðssetja ferðaþjónustuna á Suðurnesjum. Bókunarþjónustan er rekin í samvinnu við ITA sem er stærsta bókunarþjónustufyrirtæki á landinu í sölu og markaðssetningu fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Með þessu var opnað fyrir alveg nýja þjónustu fyrir ferðaþjónustufyrirtækin á Suðurnesjum við að setja á markað nýja vöru einir eða með öðrum ásamt því að koma á framfæri því sem þeir hafa sérhæft sig við.
Bláa Lónið, Ráin og Vitinn af stað
Margir hafa kvarað yfir því að ekki náist nógu vel til þeirra farþega sem bíða upp í velli á milli véla. Með þessari bókunarþjónustu opnast góð leið til að ná til þessa fólks og nýta þannig nálægðina við flugvöllinn til hins ítrasta. Margir hafa reynt að ná til flugfarþega sem bíða á milli vél í Leifsstöð og fá þá til að skoða svæðið og njóta þess fjölmarga sem hér er í boði. Það nýjasta er að Bláa Lónið muna setja á markað í júní ferð fyrir transit farþega í Bláa Lónið með morgunmat. Verða farþegarnir þá keyrðir beint úr Leifsstöð í Lónið og til baka í tæka tíð fyrir vélina. Ferðirnar verða seldar í bókunarþjónstunni í Leifsstöð. Nokkrir matsölustaðir eru að reyna að skapa sér sérstöðu í matargerð og má þar nefna Rána sem hefur sérhæft sig í laxaréttum og Vitann í Sandgerði sem er að sérhæfa sig í skelfiskréttum. Með samstilltu átaki má gera úr þessu öllu mikil viðskipti ef rétt er á málum haldið.
Grípum tækifærin
Undirritaðir villja hvetja aðila í ferðaþjónstunni á Suðurnesjum, hvaða nafni sem hún nefnist, til að nýta sér bókunarþjónustuna í Leifsstöð. Bókunarþjónustan er að mati undirritaðra eitt stærsta markaðssetningartækifæri sem hefur gefist á Suðurnesjunum í ferðaþjónustunni til þessa. Það er spáð mikilli aukningu ferðamanna í sumar og bendir mikill fjöldi lendinga á Keflavíkurflugvelli í sumar til þess að sú verði raunin. Markaðsstofan tók þátt í átakinu Inspiered by Iceland í fyrra með fjárframlagi. Slíkt kynningarátak er ekki nauðsynlegt að þessu sinni þrátt fyrir Grímsvatnagosið, nú eiga ferðaþjónar á Suðurnesjum að grípa tækifærið. Það er gott ferðasumar í vændum.
Kristján Pálsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurnesja
Yngvi Örn Stefánsson framkvæmdastjóri ITA