Böðvar aðstoðarmaður fjármálaráðherra
Böðvar Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Árna Mathiesen fjármálaráðherra og tekur hann við starfinu síðar í þessum mánuði. Frá þessu var greint á fréttastöðinni NFS í dag.
Böðvar leysir Ármann Kr. Ólafsson af hólmi en Ármann hefur gengt starfi aðstoðarmanns ráðherra í ellefu ár, fyrst hjá Halldóri Blöndal samgönguráðherra og síðan hjá Árna Mathiesen í sjávarútvegs- og fjármálaráðuneyti.
www.visir.is