Blettaskoðun á húð í Reykjanesbæ

Þessi þjónusta hefur verið veitt mörg undanfarin ár á Suðurnesjum, en Krabbameinsfélag Íslands og Félag húðlækna hafa staðið fyrir henni í Reykjavík. Góð reynsla er af þessu starfi og mörg dæmi um varhugaverðar breytingar hafa fundiast.
Tíðni húðkrabbameins hefur aukist hér á landi. Mikilvægt er því að fólk láti skoða bletti hjá lækni ef fram koma breytingar svo sem að þeir stækki, breytist að lögun og lit og sár myndast sem gróa illa.