Blár apríl – Lífið er blátt á mismunandi hátt
Blár apríl, vitundarvakning um einhverfu, hefst formlega í dag 1. apríl. Á Íslandi og um allan heim munu fyrirtæki og stofnanir þátt í vitundarvakningunni með því að baða byggingar sínar í bláu ljósi í apríl.
Styrktarfélag barna með einhverfu stendur fyrir vitundarvakningunni hér á landi. Styrktarsöfnun félagsins hefst formlega í dag og geta áhugasamir styrkt málefnið um 1000 kr. með því að hringja í 902-1010.
Í ár verður safnað fyrir námskeiðum fyrir foreldra barna með einhverfu sem og félagsfærninámskeiðum fyrir börn með einhverfu. Námskeiðin verða haldin í samvinnu við Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Nánari upplýsingar um söfnunina má finna hér: https://www.facebook.com/einhverfa
Hús og stofnanir sem taka þátt í átakinu með því að lýsa upp með bláum lit Harpa, Bessastaðir, Höfði, Ráðhúsið, Landsspítalinn, Smáralind, Fríkirkjan í HF, Hellisheiðarvirkjun, Orkuveitan, Orka náttúrunnar, Securitas, Vegagerðin, Radisson Blu og Kópavogskirkja
Blár apríl nær hámarki á föstudaginn 10. apríl. Þá munu börn í leikskólum og nemendur í grunn- og framhaldsskólum taka þátt í vitundarvakningunni með því að klæðast bláu og sýna afrakstur þemadaga um einhverfu. Stjórnendur Smáralindar munu hvetja verslunar- og veitingastaðaeigendur til að taka þátt í deginum með bláu þema. Þá verður Hreyfing með styrktarspinningtíma þar sem fyrirtækjum og einstaklingum gefst kostur á því að kaupa hjól til styrktar söfnuninni.
Einhverfa kemur samfélaginu öllu við. Athyglisverðar staðreyndir um einhverfu:
Eitt af hverju 88 barni fæðist með röskun á einhverfurófi
Hjá drengjum eru líkurnar 1 á móti 54 – fimm sinnum meiri en hjá stúlkum
Einhverfa er fötlun - ekki sjúkdómur og því ólæknandi
Það skiptir sköpum fyrir einhverfa að fá viðeigandi þjálfun eins fljótt og hægt er
Fögnum fjölbreytileikanum og tökum fólki eins og það er.
Nánari upplýsingar um einhverfu má finna á einhverfa.is, greining.is og https://www.facebook.com/einhverfa